Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Furugrund 22. Gott tæplega 160 fm parhús í vinsælu hverfi. Stórt malbikað bílastæði, steypt kerru/vagnastæði, sólpallur með heitum potti og upphitað garðhús. Gott innra skipulag í húsinu.Húsið er steníklætt timburhús byggt 2000. 158,3 fm. Þ.a. bílskúr 32,2 fm. Gróin og snyrtileg lóð. Húsi er vel viðhaldið að utan. Þak og gluggar í góðu ástandi.
Innra skipulag. Flísalögð
forstofa með fataskáp, Flísalagt
hol og
eldhús með rúmgóðri innréttingu og borðkróki. Rúmgóð
borðstofa og
stofa í framhaldi af holi, parket á gólfi. Hurð út á aflokaðan
sólpall. Hitaveitu pottur.
Í húsinu eru þrjú
svefnherbergi. Tvö þeirra eru 9 fm með fataskápum og annað þeirra er með nýlegu harðparketi.
Hjónaherbergi er tæpir 13 fm með nýlegu parketi og stórum fataskápum. Innangengt úr hjónaherbegi á
baðherbergið sem er flísalagt, með innréttingu og stórri sturtu.
Flísalagt
þvottahús og þaðan innangengt í
bílskúr, nýr hurðaopnari,
geymsluloft og
geymsla innst. Gönguhurðir að framan og aftan. Í bakgarði er
garðhúsið með rafmagni og hita.
Hiti er í gólfum í eldhúsi holi og baðherbergi.
Áhugaverð eign á góðum stað.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.