*** EIGNIN VERÐUR EKKI SÝND FYRIR OPIÐ HÚS ***LANDMARK kynnir: Afar falleg 176,9 fm efri sérhæð, þar af 29,1 fm bílskúr sem innréttaður er sem íbúð á útsýnisstað ofan við Elliðavatn í Kópavogi. Íbúðin er í tvíbýli með 47,6 fm þaksvölum ofan á bílskúr og afgirtan garð með um 14,9 fm geymsluskúr. Íbú... Sýna meira
*** EIGNIN VERÐUR EKKI SÝND FYRIR OPIÐ HÚS ***LANDMARK kynnir: Afar falleg 176,9 fm efri sérhæð, þar af 29,1 fm bílskúr sem innréttaður er sem íbúð á útsýnisstað ofan við Elliðavatn í Kópavogi. Íbúðin er í tvíbýli með 47,6 fm þaksvölum ofan á bílskúr og afgirtan garð með um 14,9 fm geymsluskúr. Íbúðin samanstendur af 29,1 fm bílskúr og 7,6 fm geymslu eða um 37 fm.Frábær staðsetning - aðeins göngufæri í Vatnsendaskóla, leikskóla, fimleikaaðstöðu Gerplu og fallega náttúru. Einnig er stutt að fara í Bónus, apótek, heilsugæslu, líkamsrækt svo það helsta sé nefnt.Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp á jarðhæð. Stiginn upp á efri hæð er með nýlegu teppi. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu rými með fallegu útsýni yfir Elliðavatn og umhverfi. Ljós innrétting er í eldhúsi og gott borðpláss. Stofan er rúmgóð og þaðan er útgengt á þaksvalir sem eru ofan á bílskúr. Sjónvarpshol með parketi á gólfi er við hurð út á svalir. Svefnherbergin þrjú eru öll rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum. Baðherbergið er flísalagt með sturtu, baðkari, fallegri innréttingu, handklæðaofni og glugga. Hiti er í gólfi. Flísalagt þvottahús með glugga er innan íbúðar. Bílskúrinn er 29,1 og er nýlega innréttaður sem íbúð. Á alrými er harðparket og falleg innrétting með helluborði og ofni. Þar er tengi fyrir uppþvottavél. Baðherbergið er flísalagt með sturtu og fallegri innréttingu. Innrétting með tengi fyrir þvottavél er í baðherbergi. Tveir opnanlegir gluggar í bílskúr og net- og sjónvarpstengingar.Lóðin er afgirt með geymsluskúr, grasflöt og lítilli verönd sunnan við bílskúrinn. Búið að tengja rafmagn í geymsluskúr, en þar eru ljós og rafmagnsinnstungur. Bílaplan framan við hús er hellulagt með stæði fyrir framan bílskúr auk annars stæðis. Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða --------------------------------------------------------- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA