*Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun-mikill áhugi var og erum við með áhugasama kaupendu að sambærilegu*Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu einstaklega glæsilega nýuppgerða 5 herbergja 156,6 fermetra íbúð á 4. hæð (gengið upp 2 hæðir) með tvennum svölum, sérgeymslu í kjallar... Sýna meira
*Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun-mikill áhugi var og erum við með áhugasama kaupendu að sambærilegu*Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu einstaklega glæsilega nýuppgerða 5 herbergja 156,6 fermetra íbúð á 4. hæð (gengið upp 2 hæðir) með tvennum svölum, sérgeymslu í kjallara, sameiginlegu þvottahúsi á hæð, og sameiginlegri hjóla og vagnageymslu í þessu vinsæla fjölbýlishúsi við Flyðrugranda í Vesturbænum. Sérstæður bílskúr í bílskúrslengju fyrir neðan húsið fylgir íbúðinni og er hann með rafmagni, hita og rennandi vatni. Samkæmt HMS er íbúðin 132,3 fermetrar og þar af 6,5 fermetra sérgeymsla í kjallara.Bílskúr er svo 24,3 fermetrar og er hann á sér fasteignanúmeri. Húsfélagið er nýbúið að gera nýjan eignaskiptasamning.Íbúðin er öll nýuppgerð á mjög smekklegan hátt. Eldhús, rafmagn og rafmagnstafla þar endurnýjuð, baðherbergið allt uppgert. Allir rofar, skápar, hurðir, gólfefni í íbúð endurnýjað sem og allir gluggar íbúðarinnar. Einnig er búð að endurnýja alla glugga og svalahurðir í íbúðinni.Lýsing eignar:Forstofa, parketlögð og með góðum fataskápum.Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt og með stórum fataskápum. Gengið út á góðar norðursvalir.Barnaherbergi I, við forstofu, parketlagt og rúmgott með fataskáp.Barnaherbergi II, parketlagt og með fataskáp.Barnaherbergi III, parketlagt og með fataskáp.Eldhús, parketlagt og með nýrri ikea innréttingu og stórri eyju. Öll tæki ný og nýtt rafmagn ásamt rafmagnstöflu. Stórir gluggar til suðurs. Viðarborðplata er á borðum, tengi fyrir uppþvottavél, og spanhelluborð.Stofa, parketlögð, rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs. Úr stofu er útgengi á stórar suðursvalir. Sjónvarpstofa, inn af stofu og aðskild henni með léttum lágreistum vegg.Baðherbergi, mjög rúmgott, flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn og vegghengt wc. Flísalögð inngeng sturta með sturtugleri, innrétting með vaski og góður veggskápur.Þvottahús, er á sömu hæð og íbúðin, sameiginlegt með öðrum íbúðum hæðarinnar og hver með sína vél. Bílskúrinn er sérstæður í bílskúrslengju við enda baklóðarinnar. Hann er á sér fastanúmeri F2025658 og er snyrtilegur með rennandi vatni, rafmagni og hita og möguleiki að selja hann sér.Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, er 6,5 fermetrar, máluð gólf og hillur.Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með útgengi á lóð.Á efstu hæð er sameiginleg sauna, snyrting og sturta fyrir stigaganginn.Húsið að utan er í góðu ástandi ásamt þaki. Húsinu hefur verið vel við haldið og var það nýlega múrviðgert og málað. Hleðslustöðvar eru fyrir rafbíla á stæðum við húsið.Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum stéttum fyrir framan hús og malbikuðum bílastæðum. Baklóðin er stór, skjólsæl og með leikvelli fyrir börn.Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og til fyrirmyndar.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð við opið svæði þaðan sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, KR völlinn, Vesturbæjarlaug og ýmsa verslun og þjónustu.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða í netfanginu