Eignin er seld og í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða 159,0 fermetra sérhæð og ris og þar af 23,0 fermetra bílskúr í reisulegu steinhúsi á einstaklega góðum stað við Flókagötu teiknað af Halldóri Jónssyni... Sýna meira
Eignin er seld og í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða 159,0 fermetra sérhæð og ris og þar af 23,0 fermetra bílskúr í reisulegu steinhúsi á einstaklega góðum stað við Flókagötu teiknað af Halldóri Jónssyni. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð nýlega, gegnheilt fiskibeinaparket lagt á alla hæðina, hurðarop breikkuð og settar nýjar hurði með Arne Jacobsen hurðahúnum svo fátt eitt sé nefnt. Einnig hefur eldhúsið verið endurnýjað og þakið á liðnum árum. Einstaklega fallegir gluggar eru á allri aðalhæðinni og svalir til suðurs frá stofu með útsýni yfir Klambratúnið. Sérinngangur er í eignina sem er á tveim hæðum þar af ris sem er undir súð og því nýtanlegir fermetrar fleiri er birt stærð segir til um.Eignin skiptist í stigahús með góðum palli, 4 svefnherbergi, stofu, eldhús og borðstofu í einu rými, tvö baðherbergi, holi, svefnherbergisgangi, vinnurými og svo er sameiginlega þvottaherbergi og þurrkherbergi í kjallara hússins. Bílskúr er við vesturhlið hússins og er með geymslu inn af og sérstæði fyrir framan.Lýsing eignar:Aðalhæð:Inngangur, einstaklega rúmgóður með linoleum dúk á gólfi og stiga, gengið upp eina hæð og er með fataskáp á palli.Hol, parketlagt og gengið upp á risloft.Herbergi I, parketlagt, með fataskáp.Svefnherbergisgangur, parketlagður, með fataskáp á heilum vegg.Herbergi ll, parketlagt með fataskáp og sérhönnuðum hillum.Hjónaherbergi, parketlagt með fataskáp á heilum vegg.Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, baðkar, ný innrétting við vask með nýjum Vola blöndunartækjum og er með glugga.Eldhús / borðstofa, parketlagt, og einstaklega rúmgott með góðri borðaðstöðu, opin við stofu og einnig frá holi. Fallega sérsmíðaðar innréttingar með marmara á borði og uppá vegg. Innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, vifta, tveir ofnar, og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Stofa, parketlögð, með glugga í tvær áttir, gengið frá holi og opin við eldhús. Gengið er út á góðar suðursvalir með fallegu útsýni yfir Klambratún.Rishæð,Gengið upp veglegan járnstiga með parketlögðum tröppum.Hol, parketlagt, og eru tvö rými sem eru nýtt sem vinnuaðstaða í dag.Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting, vegghengt wc og flísalagður sturtuklefi. Gert er ráð fyrir þvottavél á baðherbergi.Herbergi IIl, rúmgott, parketlagt með fallegum þakgluggum.Geymsluherbergi, málað gólf, er inn af svefnherbergi og er nýtt sem leikherbergi í dag. Bílskúr, með rafmagni, hita, rennandi heitu og köldu vatni með sjálfvirkum hurðaopnara og búið er að setja upp tengi fyrir rafbíl. Steypt aðkeyrsl er frá götu og sérstæði er fyrir framan.Húsið að utan lítur vel út, er vel byggt og hefur hlotið gott viðhald. Samkvæmt seljanda var þakið endurnýja 2006 og lagnir undir húsi endurnýjaðar nýlega. Lóðin, sem er 720,0 fermetrar að stærð, er gróin og sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins. Á framlóð er tyrfð flöt með trjágróðri og baklóð er með grófri möl. Staðstetning eignarinnar er virkilega góð miðsvæðis í Reykjavík gengt Kjarvalstöðum. Örstutt er í Klambratún, Kjarvalstaði, grunnskóla, menntaskóla, Sundhöllina, miðbæinn ásamt verslun og þjónustu. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu