FALLEGT EINBÝLI Á TVEIMUR HÆÐUM OG TVÖFÖLDUM BÍLSKÚR Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ - SUÐURHLÍÐ KÓPAVOGS.Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 236,9 fm.Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum byggt árið 1957 sem er búið að endurnýja mjög mikið.Þrír inngangar eru í... Sýna meira
FALLEGT EINBÝLI Á TVEIMUR HÆÐUM OG TVÖFÖLDUM BÍLSKÚR Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ - SUÐURHLÍÐ KÓPAVOGS.Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 236,9 fm.Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum byggt árið 1957 sem er búið að endurnýja mjög mikið.Þrír inngangar eru í húsið, tveir á jarðhæð. Skv. teikningum er gert ráð fyrir verönd ofan á bílskúrnum með heitum potti.Á efri hæð er gengið inn í forstofu, inn af henni er hol sem aðskilur allar vistarverur efri hæðarinnar, en þar er stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi og tvö góð herbergi. Teppalagður stigagangur er niður á neðri hæðina úr holinu. Á neðri hæð er hol og anddyri, baðherbergi, þrjú herbergi og er eitt herbergið mjög rúmgott, þvottahús/geymsla. Innangengt er úr þvottahúsinu inn í tvöfaldan bílskúrinn sem er byggður árið 1982 og skráður 55,9 fm. Geymsluloft er yfir efri hæðinni.Efri hæð;Forstofa/hol: Flísalögð forstofu með fatahengi, fataskápur er í holinu og parket er þar á gólfi. Stofa/borðstofa: Parket á gólfum og innangengt í eldhúsið úr borðstofunni.Eldhús: Góð innrétting með góðu skápaplássi, korkflísar á gólfi og borðkrókur.Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtuhengi, innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn.Svefnherbergi: Tvö góð herbergi með parketi á gólfum, fataskápar í öðru herberginu.Neðri hæð;Anddyri/hol: Flísar á gólfum.Svefnherbergi: Þrjú herbergi, eitt mjög rúmgott, fataskápar í einu herbergi.Baðherbergi: Flísalagt, walk-in sturta, uppengt salerni og innrétting við vask, handklæðaofn.Þvottahús: Rúmgott, útgangur í bakgarðinn og inngangur inn í bílskúrinn.Bílskúrinn: Bjartur og rúmgóður, skráður 55,9 fm. með sjálfvirkum hurðaopnurum, heitt og kalt vatn. Gönguhurð á hlíðinni og snjóbræðsla í innkeyrslu.Að sögn eiganda sem hefur búið í húsinu síðustu 45 ár, hefur húsinu verið vel við haldið í gegnum árin.ATH! Eignin býður upp á mikla möguleika, t.d. að útbúa íbúð á neðri hæðinni.Staðsetning er frábær, stutt er í stofnleiðir og alla þjónustu, göngufæri er í Hamraborg, heilsugæslu, skóla, Smáralind, Sundlaug Kópavogs og Fífuna svo fátt eitt sé nefnt.