eignasala.is kynnir
Faxabraut 31A, 230 Reykjanesbær, 6 herbergja raðhús á 3 hæðum, með mjög stórum sólpalli, heitum potti, góðum geymsluskúr og góðum bílastæðum innan lóðar.
Nánar tiltekið er eignin merkt 01-01, fasteignanúmer F2087444 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Birt stærð 155,0m2. Þar af er jarðhæð skráð 63,8m2, önnur hæð 63,8m2 og herbergi í risi 27,4m2
Töluvert endurnýjuð eign.
Nýir gluggar, nýjar úti- og svalahurðir. Ný gólfefni. Baðherbergi á jarðhæð endurnýjað. Rafmagn endurnýjað. Þrír nýir ofnar.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með fataskápum og harðparketi. Tvö herbergi með harðparketi, baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa, vegghengdu salerni og mjög góðri innréttingu. Lítil geymsla. Rúmgott þvottahús með útgengi á mjög stóran sólpall. Heitur pottur og geymsluskúr.
Teppalagður stigi uppá aðra hæð. Tvö herbergi með harðparketi, baðherbergi með sturtuklefa og vegghengdu salerni og ágætri innréttingu. Eldhús með eldri innréttingu, nýju harðparketi . Stofa með harðparketi og útgegni á svalir á móti vestri.
Stigi uppá ris sem er með stórum gólffleti. Í risi er eitt stórt herbergi og geymsla. (ekki myndir á netinu af risi).
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes Ellertsson , í síma 8649677, tölvupóstur joi@eignasala.is. og eignasala@eignasala.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.