Einstakt tækifæri að eignast þessa frábærlega staðsettu jörð í Flóanum sem er í klukkustundar fjarlægð frá Höfuðborginni. Á jörðinni er vel staðsett 160 fm íbúðarhús með lögbýlisrétti. Hlutdeild í óskiptu landi að Miklavatnsmýri fylgir að auki. Um er að ræða sölu á jörðinni Eystri Hellur sem eru eru 51,2 ha af grónu landi í séreign. Samkvæmd deiliskipulagi er gert ráð fyrir 6 ha athafnarsvæði með 18 lóðum á jörðinni sem verið er að selja. Miklir möguleikar til uppbyggingar ef vill. Fjórar skákir í óskiptu landi Miklavatnsmýri fylgja og eru þær allar um 30-40 hektarar að auki og er þetta gott beitarland.
Hér er víðsýnt og stutt í alla helstu þjónustu. Íbúðarhúsið er timburhús byggt 1995 á einni hæð með skriðkjallara undir. Fallegt útsýni er úr húsinu og upptekin loft í stofum, kamína. Við hliðina eru gömul útihús sem ekki eru skráð en hægt væri að gera þau upp og nýta með margvíslegum hætti. Í íbúðarhúsinu eru m.a. fjögur herbergi, baðherbergi, snyrting, þvottahús, eldhús, stofur og sjónvarpsherbergi.
Hringdu núna og fáðu allar nánari upplýsingar hjá Ásmundi Skeggjasyni, as@hofdi.is, Gsm 895 3000.- Frábær fjárfesting.