Guðný Guðmunds., löggiltur fasteignasali, 821-6610, og Domusnova fasteignasala kynna rúmgóða 3ja herbergja 100 fermaetra íbúð í steinsteyptu lyftuhúsi með sér inngangi af sameiginlegum svölum. Stigagangur bjartur. Íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefmherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaher... Sýna meira
Guðný Guðmunds., löggiltur fasteignasali, 821-6610, og Domusnova fasteignasala kynna rúmgóða 3ja herbergja 100 fermaetra íbúð í steinsteyptu lyftuhúsi með sér inngangi af sameiginlegum svölum. Stigagangur bjartur. Íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefmherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaherbergi. Ljóst parket með breiðum fjölum á gólfum, dökkar flísar á forstofu, baði og þvottaherbergi. Ljósar viðar innréttingar og innihurðar. Íbúð.Eldhús er opið við stofu með ljósri viðarinnréttingu. Forstofa með hurð inn í íbúðarými, flísar á gólfi, fataskápur upp í loft. Þvottaherbergi sér innan íbúðar er með skolvaski og borðbekk, flísum á gólfi. Herbergi eru 2 rúmgóð með góðum fataskápum upp í loft. Einnig innan íbúðar er gluggalaust geymsluherbergi sem má nýta sem skrifstofu t.d. Baðherbergi er með hvítum baðtækjum, innréttingu, upphengdu salerni og sturtuklefa, dökkar flísar á gólfi. Stofa með útsýni til fjalla og tengist eldhúsi. Útgangur á suðvestur svalir.Sameign: Teppi á þrepum flísar á öðrum gólfum. Lyfta. Sér geymsla og hjólageymsla á 1. hæðinni. Hús er álklætt að utan og með viðarklæðningu að hluta.Lóð er með steyptu bílaplani að framan og grasflötum að aftan og til hliðar. Nánari upplýsingar veita:Guðný Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali/ s.821 6610 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.