RE/MAX & Sigrún Matthea, löggiltur fasteignasali kynna:Vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja íbúð á 3.hæð (lyfta) með sérinngangi af svölum og stæði í bílageymslu á Eskivöllum 3, Hafnarfirði. Eignin er 98,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Gengið er úr stofu út á rúmgóðar svalir með svalalokun. Um er... Sýna meira
RE/MAX & Sigrún Matthea, löggiltur fasteignasali kynna:Vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja íbúð á 3.hæð (lyfta) með sérinngangi af svölum og stæði í bílageymslu á Eskivöllum 3, Hafnarfirði. Eignin er 98,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Gengið er úr stofu út á rúmgóðar svalir með svalalokun. Um er að ræða fallega íbúð þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu. Innréttingar, eldhús og baðherbergi eru hannaðar fyrir hjólstólaaðgengi. Til að fá söluyfirlit sent strax smelltu hér Nánari upplýsingar veitir Sigrún Matthea löggiltur fasteignasal í síma 695-3502 eða á netfangið . Áætlað fasteignamat fyrir árið 2024 er kr. 66.500.000,- Eignin er skv. Þjóðskrá Íslands alls 98,2 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin sjálf er 92,5 fm og sér geymsla er 5,7 fm.Íbúðin skiptist í forstofu, hjónaherbergi og tvö rúmgóð barnaherbergi, þvottahús, baðherbergi, samliggjandi eldhús og stofu. Stæði er í lokaðri í bílageymslu. Sér geymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Nánari lýsing:Forstofa með skáp upp í loft og flísum á gólfi.Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi.Barnaherbergin tvö eru rúmgóð með fataskápum og parketi.Eldhúsið er með innréttingu með miklu skápaplássi og er hönnuð fyrir hjólastólaaðgengi, bæði við vinnupláss og við eldavél. Veggflísar eru milli efri og neðri skápa. Helluborð, háfur, bakarofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél.Stofan er björt með útgengi út á rúmgóðar suður svalir með svalalokun á þrjá vegu.Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum. Sturta með gleri, innrétting við handlaug, salerni og handklæðaofn. Gott aðgengi fyrir hjólastól.Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér geymsla fylgir íbúðinni í sameign.íbúðin á sérmerkt bílastæði í bílageymslu.Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.- Gólfefni íbúðar; flísar og viðarparket. - Búið er að setja upp tengla fyrir hleðslu við stæði í bílageymslu og einnig er hleðslustöð á lóðinni. Um er að ræða fallega eign á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, verslun, líkamsrækt, íþróttamiðstöð Hauka við Ásvelli, sundlaug, góðar göngu- og hjólaleiðir o.fl.Nánari upplýsingar veitir :Sigrún M. Sigvaldadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 695-3502 eða á netfangið Athygli er vakin á því skv. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015 er fasteignasali á RE/MAX hluthafi/eigandi fyrirtækisins sem á umrædda eign. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.