Virkilega fallegt einbýlishús á tveim hæðum með bílskúr og auka íbúð á góðum stað í Áslandinu, Hafnarfirði. Steinsnar frá skóla og leikskóla. Tvennar svalir og fallegt útsýni. Húsið er steinað að utan því lítið viðhald á húsinu að utan. Eignin er alls 245,2 fm að stærð samkvæmt fmr, sem skiptist þannig að neðri hæð er 91,2 fm, efri hæð 122,8 fm og bílskúrinn 31,2 fm. Að auki er ca. 85 fm afar góð þriggja herbergja auka íbúð með sér inngangi á hlið hússins, sem aðal íbúðin finnur lítið fyrir.
- Gegnheil hnota á gólfum hússins.
- Nýtt snjóbræðslukerfi á bílaplani og gönguleið að húsi, einnig er nýr varmaskiptir í húsinu fyrir neysluvatn.
- Teikningar fyrir nýju skipulagi, ásamt uppteiknuðum garði sem kemur vel út.
- Nýlega steyptir veggir fyrir framan hús.
- Tröppur niður í garðinn og að auka íbúð sem voru steyptar síðast liðið sumar.
- Rafmagn endurnýjað. Leiktæki í garði sem fylgja með.
- Hleðslustöð fyrir tvo bíla.
- Loftræsting á neðri hæð hússins inn og út.
- Lýsingu, heitum potti og öðru í húsinu er appstýrt.
Nánari lýsing:Efri hæð: Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Innangengt er úr forstofu inn í bílskúr. Forstofuherbergi með flísum á gólfi og skáp (teiknað sem þvottahús). Gangur með parket á gólfi. Stofa og borðstofa í björtu alrými með parket á gólfi, útgengt á tvennar svalir í suð/vestur með góðu útsýni. Möguleiki að setja upp arinn í stofunni. Eldhúsið er mjög snyrtilegt með hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og ísskápur innfellt í innréttingu. Eldunareyja með góðu skúffuplássi. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi og hluta veggja. Opnanlegur gluggi, handklæðaofn og speglaskápur. Eitt stórt herbergi (raunar tvö, búið að opna á milli herbergja, hægt að breyta aftur), parket á gólfi og skápar.
Neðri hæð:Milli hæða er parketlagður stigi með næturlýsingu. Tvö barnaherbergi með parket á gólfi Hjónaherbergi sem er mjög rúmgott með skápum og parketi. Glæsilegt baðherbergi með sturtu og baðkari, flísalagt í hólf og gólf, stór speglaskápur. Gólfhiti er á neðri hæð.
Bílskúrinn: Er flísalagður, þvottaaðstaða í enda bílskúrs. Varmaskiptir, hurðaopnari Heitur pottur er á palli fyrir framan húsið.
Auka íbúð: Sérinngangur og pallur fyrir framan íbúð. Forstofa með flísar á gólfi og skáp. barnaherbergi með parketi á gólfi Hjónaherbergi, rúmgott með parketi á gólfi og skáp. Stofa með gluggum í tvær áttir, parket á gólfi. Eldhús mjög rúmgott með hvítri háglans innréttingu. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi og veggjum. Handklæðaofn og vaskinnrétting. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherberginu.
Um er að ræða afar vandaða og flott eign sem er virkilega vel staðsett í Áslandinu, Hafnarfirði í barngóðu hverfi,
þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og skemmtilegar gönguleiðir t.d í kringum hina vinsælu Ástjörn. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is