Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórum sólpalli í litlu fjölbýli við Engjavelli 12 í Hafnarfirði.
Eignin er alls 123,1 fm og skiptist þannig að íbúð er 111,9 fm og geymsla 11,2 fm.Nánari lýsing: SérinngangurForstofa með flísum á gólfi, viðarskápur og hillur með granít á bekk.
Forstofuherbergi með parket á gólfi og skáp.
Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengt út á stóran sólpall sem er um 45 fm.
Eldhús með fallegri viðarinnréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, ofn í vinnuhæð.
Eldunareyja með gashelluborði. Granít er á bekkjum innréttingar og eyju.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og skáp.
Baðherbergi með viðarinnréttingu og granít á bekkjum. Baðkar og handklæðaofn. Gólf og veggir flísalagðir.
Þvottahús með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign ásamt hjóla-og vagnageymslu.
Sameiginleg bílastæði og komin hleðslustöð.
* Sérinngangur
* Lítið fjölbýli, aðeins 7 íbúðir.
* Stór sólpallur
* Sameign snyrtileg.
Frábær fjölskyldueign innarlega á völlunum þar sem stutt er í skóla, leikskóla, glæsilegt íþróttasvæði Hauka, Ásvallalaug sem og alla þjónustu.
Vallarhverfið í Hafnarfirði er sérlega barnvænt hverfi.Nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Sigurmannsson löggiltur fasteignasali í s. 655-7000 / stefan@as.is og
Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is