Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu óvenjulega glæsilega íbúð í Listhúsinu við Engjateig við Laugardalinn í Reykjavík. Um er að ræða 212,6 fermetra, 6 herbergja, endaíbúð á tveimur hæðum með gluggum í þrjár áttir, sérinngangi, mjög stórum þakgluggum og yfirbyggðum, opnanlegum suðu... Sýna meira
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu óvenjulega glæsilega íbúð í Listhúsinu við Engjateig við Laugardalinn í Reykjavík. Um er að ræða 212,6 fermetra, 6 herbergja, endaíbúð á tveimur hæðum með gluggum í þrjár áttir, sérinngangi, mjög stórum þakgluggum og yfirbyggðum, opnanlegum suðursvölum.Íbúðir af þessu tagi eru mjög sjaldgæfar í Reykjavík, en íbúðin er í anda loft-íbúða í stórborgum erlendis. Hið innra var eignin sérstaklega hönnuð og skipulögð af Steve Christer, arkitekt hjá Studio Granda, fyrir fáeinum árum síðan og í henni er mjög mikil lofthæð á báðum hæðum eða allt að 4,5 metrar. Sérsmíðaðar innréttingar, hillur o.fl. eftir eftir teikningum Steve Christer.Íbúðin stendur við opið svæði til austurs og norðurs og því mjög rúmt um hana og hún afar björt.Lýsing eignar:Forstofa, kókosteppalögð og með fataskáp með rennihurð með spegli á.Hol, parketlagt og með föstum hillum.Baðherbergi, rúmgott, mosaiklagt gólf og veggir, innbyggðir speglaskápar með lýsingu í, handklæðaofn og stór mosaiklögð sturta með innbyggðum tækjum í vegg og sturtugleri.Barnaherbergi I, stórt, parketlagt og með fataskáp með rennihurð með spegli á.Eldhús, bjart, rúmgott og parketlagt með fallegum hvítum + viðarinnréttingum með flísum á milli skápa og góðri borðaðstöðu.Samliggjandi stofur, mjög stórar, bjartar og parketlagðar með mjög mikilli lofthæð og stórum gluggum. Fallegt útsýni úr stofum yfir garð Ásmundarsafns, að Esjunni og víðar. Gengið er upp á efri hæð íbúðarinnar um mjög fallegan sérsmíðaðan stálstiga með viðarþrepum.Stigapallur, parketlagður.Baðherbergi, mosaiklagt gólf og veggir, innbyggðir speglaskápar með lýsingu í speglum, handklæðaofn, mjög fallegt frístandandi baðkar og mosaiklögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum í vegg.Þvottaherbergi, mosaiklagt gólf og hluti veggja og innrétting með vinnuborði.Barnaherbergi II, parketlagt og stórt með fataskápum á heilum vegg. Mikil lofthæð í herbergi.Hjónasvíta, parket- og mosaiklögð, stór og með yfirbyggðum opnanlegum svölum til suðurs. Mjög mikilli lofthæð er í hjónasvítu, fataskápar, innbyggður ísskápur og innrétting með vaski.Barnaherbergi III, innaf hjónaherbergi er parketlagt og með svefnlofti yfir að hluta. Þetta herbergi hefur verið notað sem fataherbergi.Í kjallara er sér geymsla sem er 7,2 fermetrar að stærð.Húsið að utan er allt nýviðgert og málað og fyrirhugað er að skipta um þakjárn sumarið 2022. Skipt var um allt gler í íbúðinni árið 2018 og sett sólstopp gler auk þess sem skipt var um þá glugga sem þurfti.Lóðin er fullfrágengin með malbikuðum bílastæðum og góðri aðkomu. Hitalagnir eru í hellulagðri verönd til suðurs fyrir framan íbúðina og í steyptum tröppum upp að íbúðinni. Skv. eignaskiptasamningi eru þrjú sér bílastæði á lóðinni tilheyrandi eigninni.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á grónum og fallegum stað við Laugardalinn þaðan sem stutt er í fallegar gönguleiðir, íþróttaaðstöðu og alla þjónustu.Allar nánari upplýsingar og tímapantanir fyrir skoðun eignarinnar veitir Guðmundur Th. Jónsson lögg. fasteignasali á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu