***EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA***Gimli fasteignasala kynnir: Vel skipulögð og björt 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð ásamt stæði í bílageymslu. Eignin skiptist í 2 herbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi og eldhús. Íbúð er skráð 90,1 fm og stæði í bílageymslu 24,1 fm samtals 114,2 fm. Geymsla í sameign ... Sýna meira
***EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA***Gimli fasteignasala kynnir: Vel skipulögð og björt 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð ásamt stæði í bílageymslu. Eignin skiptist í 2 herbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi og eldhús. Íbúð er skráð 90,1 fm og stæði í bílageymslu 24,1 fm samtals 114,2 fm. Geymsla í sameign er ekki í skráðum fermetrum.Nánari upplýsingar veitir Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7737126, eða Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, á milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til eða .NÁNARI LÝSING:Anddyri/hol: í opnu rými. Rúmgóður skápur.Herbergi #1 og 2: mjög rúmgóð og björt. Fallegt útsýni úr svefnherbergisgluggum.Eldhús: hvít innrétting, og gott borðpláss. Borðkrókur. Eldhús er nýlega endurnýjað.Stofa/borðstofa: í opnu rými. Björt og rúmgóð. Útgengi á svalir.Baðherbergi: nýlega uppgert. Walk in sturta. Flísar á gólfi og Fibo plötur á veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Gólfefni í íbúð er nýlegt p.parket, nema annað komi fram.Innihurðar endurnýjaðar 2018.Geymsla: í sameign, með glugga og hillum.Þvottahús: í sameign.Hjóla- og vagnageymsla: í sameign.Sameign og ytra byrði: stigagangur og sameign gerð upp 2021, nýtt teppi á stiga og sameign máluð. Einnig hefur húsið fengið gott viðhald.Mikið endurnýjuð og rúmgóð 3ja herbergja íbúð í Seljahverfi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu; verslun, leikskóla og skóla.Nánari upplýsingar veitir Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7737126, eða Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, á milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til eða .Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.