ALDA fasteignsala kynnir í einkasölu 4 herbergja fjölskyldu íbúð á þriðju hæð í mikið endurnýjuðu húsi á frábærum stað í Breiðholtinu við Engjasel 72, 109 Reykjavík. Íbúðin er endaíbúð, rúmgóð, björt með fallegu útsýni og telur þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahúsi ásamt samliggjandi eldhúsi... Sýna meira
ALDA fasteignsala kynnir í einkasölu 4 herbergja fjölskyldu íbúð á þriðju hæð í mikið endurnýjuðu húsi á frábærum stað í Breiðholtinu við Engjasel 72, 109 Reykjavík. Íbúðin er endaíbúð, rúmgóð, björt með fallegu útsýni og telur þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahúsi ásamt samliggjandi eldhúsi, stofu og borðstofu.Skv. skráningu þjóðskrár er íbúðin skráð 102,4fm og 13fm stæði í bílskýli samtals 115fm, einnig fylgir u.þ.b. 6fm geymsla í sameign sem ekki er tekin fram í fermetratölu íbúðar, er hún óskráð og eru því nýtanleg rými eignarinnar um 121fmFyrir nánari upplýsingar hafið samband við Erling Proppé, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 690-1300 eða Íbúðin er mjög vel staðsett í hverfinu, þar sem stutt er í Seljaskóla, Ölduselsskóla, leikskóli í bakgarðinum og opin græn svæði.Nánari lýsing:Forstofuhol: Stórir fataskápar og parket á gólfi.Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með fallegu útsýni sem rúmar bæði stofu og borðstofu. Parket á gólfi. Gengið er út á svalir úr borðstofu.Eldhús: Opið rými með ljósum innréttingum með viðarborðplötu, keramik helluborð, háfur, flísar á gólfi. Opið er inn í stofu og borðstofu.Svefnherbergi 1: Bjart og rúmgott svefnherbergi með stórum fataskápum. Parket á gólfi.Svefnherbergi 2: Parket á gólfi.Svefnherbergi 3: Parket á gólfi.Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, vegghengt klósett og hvít innrétting með handlaug.Þvottahús: Hvít innrétting sem rúmar þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.Stæði í bílskýli: Sérmerkt stæði. Þar er einnig að finna sameiginlega þvottaaðstöðu fyrir bíla með háþrýstidælu og þurrkstæði. Sameign: Hjólageymsla og geymsla u.þ.b. 6fm.Árið 2019 var gerð ástandsskýrsla og í kjölfar hennar ráðist í framkvæmdir.Þau atriði sem helst var ráðist í eru:- Múrviðgerðir á útveggjum og svölum- Suðvestur, norðaustur og norðvestur hliðar hússins voru klæddar með álklæðningu.- Gert var við svalargólf, endursteypt þar sem þar var þörf, svalagólf flotað og málað með epoxy málningu- Skipt var um svalahandrið- Skipt var um glugga á suðausturhlið og norðvesturgafli hússins.- Þaklæðning var endurnýjuð ásamt fylgihlutum þess.- Þakrennur og niðurfallsrör frá þaki voru endurnýjuð.- Skyggni Engjasels 72 var endursteypt- Þakskegg og norðausturgafl var málaður.- Áður en farið var í þessar framkvæmdir þá hafði norðaustur gafl hússins verið klæddur.- Bílskýlið var gert upp að miklu leiti 2022 eftir bruna. Rafmagn, loftræstikerfi, hurðar, gluggar og loftunarristar.Um er að ræða bjarta fjölskyldueign þar sem mikið hefur verið gert fyrir húsið á undanförnum árum, stutt er í alla þjónustu, leikskólar og skólar í göngufæri, Krónan og Iceland í hverfinu.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Erling Proppé, aðstoðarmaður fasteignasala, sími 690-1300, Halldór Kristján Sigurðsson, löggiltur fasteignasaliKostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.