** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og mikið endu... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð. Eignin er skráð 67,4 m2 en þarf af íbúð 59,3 m2 og geymsla 8,1 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, hjónaherbergi, baðherbergi. Stórar svalir í suðurátt með svalalokun. Eignin er laus strax við kaupsamning. Árið 2019 var teppi á stigagöngum og stigagangar málaðir. Árið 2018 var skipt um járn á þaki og þakrennur. Einnig sett upp svalalokun. Búið að fara í neysluvatnslagnir. Búið að klæða gafla hússins. Húsfélagið stendur vel en það á til í framkvæmdarsjóð um kr. 17.000.000,- Fyrirhugað er að fara í framkvæmdir á ytri byrði hússins en ekkert samþykkt.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Lýsing eignar:Forstofa er með parketi á gólfi.Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta og innbyggð lítil uppþvottavél.Hjónaherbergi er rúmgott herbergi með parket á gólfi og fataskáp.Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Falleg innrétting og vegghengt salerni. Góður sturtuklefi. Innrétting fyrir þvottavél.Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar suður svalir sem eru yfirbyggðar með svalalokun (gler)Sérgeymsla á jarðhæð með hillum og glugga. Er skráð 8,1 m2.Sameign: Íbúðinn fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla og vagnageymslu á jarðhæð ásamt sameignlegu þvottahúsiVerð kr. 39.900.000,-Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.