Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna:
Rúmgóð og björt 2ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Eiðistorg. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. Björt og vel skipulögð íbúð á fjórðu hæð með sólskála og sólríkum svölum í þessu lyftuhúsi við Eiðistorgið.
Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 95,2 m², þar af er rúmgóð geymsla í sameign skráð 8,1 m².
Mögulegt er að stúka af aukaherbergi í stofu með tveim léttum milliveggjum.
Lýsing íbúðar:Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa er í rúmgóðu, björtu og fallegu parketlögðu rými, góðir gluggar og útgengt í góða yfirbyggða flísalagða sólstofu.
Eldhús tengist stofu með borðkrók/borðstofu og er þannig hluti af alrými íbúðarinnar. Innrétting er hvít og viðarlit. Opnanlegur þakgluggi í eldhúsi.
Svefnherbergi rúmgott, með góðum nýlegum skápum og parketi á gólfi. Útgengt á sólríkar svalir úr herberginu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með vaskinnréttingu,walk-in sturtu og upphengdu salerni. Tengi fyrir þvottavél. Opnanlegur þakgluggi.
Nýlegt viðarparket er á öllum rýmum íbúðarinnar, nema á baðherbergi, forstofu og sólskála.
SameignSameiginlegt þvottahús fyrir Eiðistorg 13 og 15 er á hæðinni (sameiginlegar vélar) til notkunar fyrir íbúa.
Í sameign hússins í kjallara eru sérgeymslur, ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Innangengt er úr stigagangi inn í verslunarmistöðina við sjálft Eiðistorgið.
Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni. Einnig eru gestastæði við húsið, og nóg af öðrum bílastæðum í kringum húsið.
Hér er um að ræða rúmgóða íbúð miðsvæðis í vel staðsettu lyftuhúsi við Eiðistorg. Stutt er í helstu þjónustu á Eiðistorgi og þar í kring.
Í tíð fyrri eigenda var stúkað af aukaherbergi í stofunni, og er auðvelt að gera síkt aftur með tveimur léttum veggjum.
Íbúðin er tóm og tilbúin til afhendingar strax við kaupsamning sé þess óskað.
Til eru myndir af íbúðinn áður en hún var tæmd, ef óskað er eftir að sjá hvernig íbúðin leit út með húsgögnum.
Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is