Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Egilsbraut 9a, Neskaupstað. Enni.
Lítið hús en samt með aukaíbúð.Hlýlegt lítið einbýlishus úr timbri á steyptum kjallara. Húsið var byggt var árið 1930 samkvæmt skráningu.
Húsið er mjög snyrtilegt og ber með sér gott viðhald og talsverðar endurbætur.
Allt ytra byrði hússin er nýlegt og einnig eru gluggar nýlegir (eldhúsgluggar frá 2022).
Stór afgirtur sólpallur var gerður við húsið árið 2022 ásamt vandaðri útigeymslu.
Á miðhæðinni eru eldhús og stofa eftir endilangri suðurhliðinni og var áður lúga niður í kjallarann í SV horni stofunnar, búið er að loka lúgunni og fjarlægja stigann en hægt er að breyta aftur í fyrra horf og þá var lúgunni lokað með hlera til að auka gólfpláss þegar á þurfti að halda. Einnig er gott herbergi með dyrum út á sólpall á hæðinni. Við innganginn er forstofa og lítið hol þar innaf og baðherbergi til hliðar.
Eldhúsinnrétting var nýlega tekin í gegn, skipt um borðplötu og settur nýr efri skápur. Nýr skápur og speglaskápur á baðherbergi á efri hæð.
Allt húsið er nýlega málað að innan.
Á neðri hæð er sér íbúð með sér aðstöðu sem býður upp á góða útleigumöguleika. Neðri hæðin var endurnýjuð árið 2024 þar sem meðal annars var sett upp baðkar og lítil eldhúsinnrétting.
Auðvelt er að sameina hæðirnar aftur þar sem stigi er til staðar og lítið mál að opna á milli hæða.
Dæmi um nýlegar endurbætur:2026 – Ný borðplata á eldhúsinnréttingu. Eldhúsinnrétting gerð upp. Allir veggir málaðir fyrir utan baðherbergi.
2024 - Nýtt baðker á neðrihæð. Eldhúsinnrétting á neðri hæð.
2022 - Stór sólpallur og garður norðan megin afgirtur. Nýr geymsluskúr smíðaður. Nýir gluggar sunnan megin (stofa og eldhús) á efri hæð.
2021 - Nýr stór hitakútur.
2020 - Gólf á neðri hæð húðað með epoxý. Nýr lítill gluggi og salerni útbúið á neðri hæð.