Stórborg kynnir á draumastað eignina Efsti-Dalur 1, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 220-6158 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi.
Eignin Efsti-Dalur 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 220-6158, birt stærð 97.2 fm. ( aðalhús 78.8 fm og gestahús 18.4 fm)
Um ræðir sumarhús ásamt gestahúsi á eignarlandi rétt innan við Laugarvatn úr landi Efsta Dals. Húsið stendur á stórbrotnum útsýnisstað ofarlega í skógi vaxinni hlíð þar sem eru engin önnur hús. Sérvegur liggur upp að húsinu. Segja má að um náttúruperlu sé að ræða. Landið er skógi vaxið með bæði háum barrtrjám og öspum. Falleg heimreið að húsinu og stæði fyrir bíla. Landið er afgirt. Stórkostlegt útsýni og víðsýni til allra átta. Sannkallað paradísarhreiður. Ca. 70-80 mín keyrsla frá Reykjavík.
Húsið er timburhús byggt árið 1966 og gestahús byggt árið 1993. Húsið er kynnt með rafmagni. Rotþró er á landinu. Húsið skiptist í forstofu, geymslu, stofu og eldhús, tvö herbergi og baðherbergi. Pallar eru í kringum húsið, bæði að neðan og ofan húsið. Útisturta. Gólf eru með furugólfborðum. Gler er tvöfalt. Upphitun er með rafmagnsofnum. Gestahúsið stendur neðan við aðalhúsið og er það eitt rými með svefnaðstöðu. Geymsla er sambyggð.
Núverandi eigandi mun ljúka lagfæringum á eigninni, standsetja baðherbergi, lagfæra timburverk og fl. Hér er verið að selja frábærlega staðsett eignarland með upphaflegum húsakosti sem er verið að standsetja og lagfæra fyrir sumarið.
Stutt í alla þjónustu. Gullni hringurinn. Laugarvatn Fontana, verslun og golfvöll.
Einstök eign. Sjón er sögu ríkari.
Gert er ráð fyrir að eigni verði afhent skv. nánara samkomulagi í góðu og fallegu ástandi.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Hrafn , í síma 8952049 , tölvupóstur stefan@storborg.is.