RE/MAX kynnir hæð og ris með bílgeymslu í tvíbýli að Efstasundi 70 í Reykjavík. Húsið stendur innarlega á lóðinni. Garður er stór, gróinn og skjólsæll. Verönd út frá setustofu. Svefnherbergin eru fimm, tvö baðherbergi og tvær stofur. Stutt í leikskóla og grunnskóla, íþróttastarf, heilsugæslu, sundla... Sýna meira
RE/MAX kynnir hæð og ris með bílgeymslu í tvíbýli að Efstasundi 70 í Reykjavík. Húsið stendur innarlega á lóðinni. Garður er stór, gróinn og skjólsæll. Verönd út frá setustofu. Svefnherbergin eru fimm, tvö baðherbergi og tvær stofur. Stutt í leikskóla og grunnskóla, íþróttastarf, heilsugæslu, sundlaug, líkamsrækt og verslanir. Einnig göngufæri í paradísina í Laugardalnum.Eignin skiptist í forstofu, tvær stofur, eldhús, tvö baðherbergi, fimm svefnherbergi (tvö í rislofti), bílskúr og geymslu. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 204,5 m2. Íbúðarrými er með skráða 150,5 m2 og bílgeymsla 54,0 m2.Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing neðri hæðar:Forstofa er inn af steinsteyptum útidyratröppum. Innan íbúðar er komið inn á brúnyrjóttar gólfflísar. Herbergi 1 er með gluggum á tveimur hliðum. Parket á gólfi.Herbergi 2 er með útgengi út á suður svalir. Stórir viðarfataskápar ná upp í loft. Parket á gólfi.Herbergi 3 er inn af neðri stofu (sjónvarpsherbergi) og var bætt við síðar. Rúmgott með glugga sem snýr út á viðarverönd. Hvítur fataskápur. Brúnar gólfflísar.Baðherbergi 1 er með hvítum flísum upp veggi og baðkar. Tvö opnanleg fög (flettigluggar). Baðkar, upphengt salerni, hvítur handklæðaofn og hvít innrétting við handlaug. Veggfestur stór speglaskápur með ljósum. Niðurtekið loft með innfelldri lýsingu. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gráar gólfflísar.Baðherbergi 2 er nýuppgert. Flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum. Sturta með gleri, upphengt salerni, krómhandklæðaofn, handlaug og spegill þar fyrir ofan.Eldhús er með hvítri U laga innréttingu. Efri skápar á tveimur veggjum og ná upp í loft. Milli efri og neðri skápa eru ljósar veggflísar. Bakaraofn, helluborð. Stæði fyrir uppþvottavél. Brúnar gólfflísar.Stofa er björt, rúmgóð og með góðri lofthæð. Brúnyrjóttar gólfflísar. Eitt þrep er niður í neðri stofu (sjónvarpsherbergi).Neðri stofa er með léttum vegg milli stofu og eldhúss. Brúnar gólfflísar. Útgengi er út á viðarverönd.Nánari lýsing efri hæðar:Teppalagður stigi er frá forstofu upp á efri hæð.Herbergi 4 er með tveimur þakgluggum. Geymslur undir súð. Herbergi 5 er með einum þakglugga. Geymslur undir súð.Bílgeymsla er 54 m2. Heitt og kalt vatn og niðurfall. Fjarstýrður bílskúrshurðaopnari fylgir (óuppsettur).Geymsla er innan bílskúrs. Opið rými.Garður er gróinn. Innkeyrslan tilheyrir umræddri eign.Um tvíbýli er að ræða og eru eigendur neðri hæðar einnig að hugsa sér til hreyfings.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún í síma 864-0061 / -Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.000 kr. af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.