Lind fasteignasala kynnir með stolti: Nýjar glæsilegar íbúðir í nýju hverfi við Vogabyggð. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í hverfinu sem staðsett er við Elliðavog. Stutt er í alla þjónustu og nálægð við hafið og ósnortna náttúru.Íbúðunum er skilaði fullbúnum með vönduðum innréttingum frá ítalsk... Sýna meira
Lind fasteignasala kynnir með stolti: Nýjar glæsilegar íbúðir í nýju hverfi við Vogabyggð. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í hverfinu sem staðsett er við Elliðavog. Stutt er í alla þjónustu og nálægð við hafið og ósnortna náttúru.Íbúðunum er skilaði fullbúnum með vönduðum innréttingum frá ítalska framleiðandanum Gili Creation, gólfhiti, gólfsíðir gluggar, vínilparket frá Gólfefnavali ehf. fylgir. Þá eru öll baðherbergi og þvottahús með flísum frá Gili Creation. Silestone kvartsteinn á borðum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í eldhúsi, þvottavél og þurrkari fylgir í þvottahúsum/rýmum.Íbúð 308 – 3ja herb. 165,1 fm. Tvær hæðir. Geymsla 5,9 fm. (innaf bílastæði). Merkt. 00-64. Stæði merkt B13.Komið er inn í rúmgott anddyri þar sem á hægri hönd er þvottahús, á vinstri hönd er herbergi 9,3 fm. þaðan er komið inn í hol, frá holi er útgengi út á svalir sem snúa í vesturátt. Stór og góð borðstofa með gluggum á tvo vegu. Góð stofa. Sér þvottahús. Frá holi er stigi upp í efri hæð íbúðarinnar, komið upp í gott sjónvarpsrými með útgengi út á stórar þaksvalir 33,4 fm., hjónaherbergi 22 fm., með fataherbergi og baðherbergi þaðan sem útgengt er á þaksvalir með heitum potti (rafmagnspottur)Baðherbergi er með flísalögðum sturtubotn, sturtugler úr reyklituðu gleri sem nær frá gólfi í loft innrammað í svartan álramma. Áætluð afhending: júlí-ágúst 2022.Sýnum samdægurs alla daga, hafið samband við:ERLA DRÖFN MAGNÚSDÓTTIR S: 6920149, .Hlynur Bjarnason S. 697 9215, HANNES STEINDÓRSSON S. 6995008, Um húsið:*Súðarvogur 2-4, Dugguvogur 15-19 og Kuggavogur 16-24 er glæsilegt fjölbýlishús með 62 íbúðum ásamt 9 atvinnurýmum á jarðhæð hússins. Íbúðirnar eru 2-5 herbergja og frá 57 fermetrum til 165 fermetrar að stærð*Í húsinu eru 5 stigahús, Súðarvogur 2 og 4, Dugguvogur 15, 17 og 19. Við Kuggavog 16-24 standa síðan 5 íbúðir með sérinngangi. Á jarðhæð íbúðanna við Kuggavog er um 28 fm rými með sérinngangi sem möguleiki er á að opna á milli hæða.*Vandaðar innréttingar frá Gili Creation, Ragnar Sigurðsson innanhúsarkitekt sá um hönnuna en Gili annaðist alla smíði og uppsetningu á innréttingunum ásamt því að leggja til allar flísar og sjá um flísalögn í íbúðum. Innréttingar eru úr úr reyktri melamin eik eða hefðbundinni melamin eik, mismunandi útfærslur eftir íbúðum.*Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari fylgja öllum íbúðum.*Vaskar og blöndunartæki koma frá frá Grohe (eða sambærilegt) Eldhúsin eru búin span helluborðum, blástursofnum með sjálfhreinsibúnaði og kjöthitamæli, uppþvottvél, innbyggðum ísskáp og gufugleypi (háf). Öll tæki koma frá Ormsson ehf.Um bílakjallarann:Við húsið er bílakjallari með 57 bílastæðum, sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu, tæknirýmum og geymslum sem fylgja hverri íbúð. Innkeyrsla í bílakjallara er frá Kuggavogi. Ofan á bílakjallaranum er svo sameiginlegur garður með gróðri og leiktækjum. Húsið er stallað og því ýmist 3-4 hæða.Ytri frágangur og lóð:Veggir utanhúss: Veggir eru staðsteyptir, einangraðir að utan með steinull. Húsið er klætt að utan með Triple S álkerfi frá Áltak ehf. ýmis með Cembrit sementsplötum, 2mm hvítu áli eða gráu lábáru áli samkvæmt teikningum arkitekts. Uppbygging hússins er miðuð við að uppfylla gildandi reglugerð hvað varðar uppbyggingu útveggja og einangrun.Þak: Uppbygging þaks er samkvæmt teikningum hönnuðaSvalir: Eru forsteyptar og ómeðhöndlaðar.Þaksvalir og sérafnotafletir: Eru með uppstóluðu flísakerfi frá Álfaborg.Gluggar: Eru ál/timbur frá danska framleiðandanum Ideal CombiLóð: Er fullfrágengin, hellulögð og tyrfð í samræmi við teikningar arkitektsAnnað: Til frekari upplýsinga varðandi byggingalýsingu er aðilar hvattir til að kynna sér byggingalýsingu og teikningar Archús arkitekta.Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins: www.sudarvogur.isKaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.Eignin skilast skv. skilalýsingu seljanda.Allir Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 8 samstarfsaðilum, m.a.: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Ísleifur Jónsson, Parki, Betra bak og Dorma. -----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.