SUNNA FASTEIGNASALA ehf. kynnir:DÚFNAHÓLAR 6 - ÍBÚÐ 202. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með bílskúr. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni yfir borgina. Falleg 3ja herbergja 98,3 m2 íbúð á 2. hæð að Dúfnahólum 6 á einum besta stað í Breiðholtinu. Íbúðin sjálf er 74,7 m2 og henni fylgir bí... Sýna meira
SUNNA FASTEIGNASALA ehf. kynnir:DÚFNAHÓLAR 6 - ÍBÚÐ 202. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með bílskúr. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni yfir borgina. Falleg 3ja herbergja 98,3 m2 íbúð á 2. hæð að Dúfnahólum 6 á einum besta stað í Breiðholtinu. Íbúðin sjálf er 74,7 m2 og henni fylgir bílskúr sem er 23,6 m2. Húsið er í mjög góðu ástandi og hefur það fengið gott viðhald, úti sem inni. Sameign er snyrtileg en til stendur að skipta um teppi í sameign og mála stigaganginn en sú framkvæmd er á kostnað seljanda. Nýlega var skipt um glugga í húsinu eftir þörfum, og svalagólf endurgerð. Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð á síðustu árum. Baðherbergið var endurnýjað að öllu leiti árið 2021, nýtt parket frá árinu 2020 ásamt nýjum fataskápum, nýjum innihurðum og nýrri eldvarnarhurð.Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, bæði með fataskáp, baðherbergi, bílskúr og geymslu sem staðsett er í sameign. Nánari lýsing eignar: Forstofa: Komið er inn í forstofu/hol með stórum fataskáp.Stofa/borðstofa: Stór og björt stofa/borðstofa með útgengi út á svalir með frábæru útsýni yfir borgina. Eldhús: Með viðar innréttingu og nýlegu helluborði og bakaraofni, og borðkrók. Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp.Barnaherbergi 1: Lítið svefnherbergi með fataskáp.Baðherbergi: Með flísum í hólf og gólf, nýrri baðherbergisinnréttingu, upphengdu salerni og sturtu.Bílskúr: Rúmgóður 23,6 fm. bílskúr sem staðsettur er á neðstu hæð eignarinnar. Í bílskúrnum er heitt/kalt vatn og rafmagn.Sameign/geymsla: Snyrtilegur stigagangur. Í kjallara er rúmgóð geymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, og hjóla- og vagnageymsla.Gólfefni: Ýmist parket eða flísar.Húsið er með tvo innganga, einn að framanverðu og annan að aftanverðu.Húsfélagið á íbúðaraðstöðu sem er leigð út og rennur sú upphæð í hússjóð. Íbúðin er mjög vel staðsett í Hólahverfinu, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir. Örstutt í náttúruperluna Elliðaárdal.Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfræðingur og lfs., í síma 8633445 eða í tölvupósti á netfangið: .Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.