Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á fimmtu hæð og með miklu útsýni í lyftuhúsi að Dúfnahólum 2 í 111 Reykjavík. Eignin er skráð 62,1 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 57,5 m2 og geymsla 4,6 m2 , og samanstendur af anddyri, skála, hjónaherbergi, b... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á fimmtu hæð og með miklu útsýni í lyftuhúsi að Dúfnahólum 2 í 111 Reykjavík. Eignin er skráð 62,1 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 57,5 m2 og geymsla 4,6 m2 , og samanstendur af anddyri, skála, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhúsi, stofu og yfirbyggðum svölum. Eign með mikla möguleika!Nánari lýsing:Sameign: flísar í anddyri, teppalagður stigagangur og lyfta. Anddyri: parket á gólfi og ágætur fataskápur. Hol/skáli: parket á gólfi.Stofa: parket á gólfi, stór gluggi til norðurs og útgengi á yfirbyggðar svalir þaðan sem njóta má fallegs útsýnis til norðurs og vesturs.Eldhús: eldri innrétting, ágæt vinnuaðstaða og borðkrókur, gluggi til norðurs með opnanlegu fagi. Á gólfi er korkur. Hjónaherbergi: rúmgott með góðum fataskápum og glugga með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket. Baðherbergi: flísar á gólfi og á veggjum, vegghengt WC, handlaug, tengi fyrir þvottavél og sturtuklefi með flísalögðum sturtubotni. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sunnan við eign er sameiginlegur garður með leiktækjum. Í september stendur til að endurnýja lyftu í stigaganginum og mun seljandi greiða hlut íbúðar í þeirri framkvæmd. Eign með mikla möguleika og frábæru útsýni í grónu hverfi.Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.