Gimli fasteignasala kynnir: Fallega og rúmgóða 3ja herbergja risíbúð. Góð staðsetning, stutt er í skóla og þjónustu. Íbúðin sem er skráð 65,2 fm. skiptist í eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslur. Þar sem íbúðin er að hluta til undir súð þá er gólfflötur hennar stærri. Gólfefni er h... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Fallega og rúmgóða 3ja herbergja risíbúð. Góð staðsetning, stutt er í skóla og þjónustu. Íbúðin sem er skráð 65,2 fm. skiptist í eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslur. Þar sem íbúðin er að hluta til undir súð þá er gólfflötur hennar stærri. Gólfefni er harðparket frá Birgisson sett á 2019. Nánari upplýsingar veitir Lilja Hrafnberg, viðskiptafræðingur/löggiltur fasteignasali, í síma 820 6511, milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til NÁNARI LÝSING:Anddyri: Rúmgóður stigagangur, teppalagður.Eldhús: Hvít innrétting frá Ikea með hvítri quartz borðplötu frá S Helgasyni og hvítum subway flísum. Nýleg tæki, þ.m.t. keramik helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, innangengt í góða geymslu undir súð.Stofa: Rúmgóð og björt, flæðir saman með eldhúsi.Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum glugga.Barnaherbergi: Rúmgott og bjart, innangengt í geymslu.Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og baðkar með sturtu. Rúmgott.Þvottahús: Er í sameign en tengi er fyrir þvottavél í eldhúsi á hæð.Geymslur: Báðar nokkuð rúmgóðar, önnur inn af eldhúsi og hin inn af barnaherbergi.Sameiginlegt þvottahús: Í kjallaranum er snyrtilegt. Garður er sameiginlegur, fallegur og gróinn.Um eignina: Skipt var um skólplagnir og dren árið 2006. Hurðir endurnýjaðar nýlega. Útidyrahurð er yfirfelld eldvarnarhurð úr eik frá 2007. Hurðir innandyra eru hvítar og mattsprautaðar frá 2011. Baðherbergi og vatnslagnir endurnýjaðar 2007. Gira-ljósrofar og rafmagnstenglar, endurnýjaðir árið 2008. Eldhúsinnrétting og tæki voru endurnýjuð 2019. Samþykktar teikningar liggja fyrir frá 2012 fyrir gerð svala og gólfsíðra glugga í stofu.Stigagangur var málaður og teppalagður 2017. Rafmagnstafla og raflagnir í íbúð frá 1992. Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.