Sunna fasteignasala ehf. og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna eignina Dofraberg 9 í Hafnarfirði. Um er að ræða mjög fallega og bjarta 118fm fimm herbergja íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli á góðum stað í Hafnarfirði. Eignin er á tveimur hæðum og er stærri en uppgefnir fermetrar segja til um, þ... Sýna meira
Sunna fasteignasala ehf. og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna eignina Dofraberg 9 í Hafnarfirði. Um er að ræða mjög fallega og bjarta 118fm fimm herbergja íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli á góðum stað í Hafnarfirði. Eignin er á tveimur hæðum og er stærri en uppgefnir fermetrar segja til um, þar sem efri hæðin er að hluta til undir súð.**Nýtt parket er í íbúðinni og nýjar innihurðar. Skipt var um þakrennur árið 2018, skipt var um eldvarnarhurð árið 2020, loftræstistokkar yfirfarnir og hreinsaðir sama ár, þá voru allir gluggar yfirfarnir árið 2021 og rúður endurnýjaðar eftir þörfum. **Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, sjónvarpshol (auðvelt væri að bæta við fjórða herberginu þar), baðherbergi á neðri hæð, og þvottahús og salerni í sama rýminu á efri hæð. Nánari lýsing:Neðri hæðForstofan er rúmgóð með þreföldum fataskápumSvefnherbergi er hægra megin við forstofu og er rúmgott með fataskápBaðherbergið á neðri hæð er með baðkari með sturtuaðstöðu, flísar eru á gólfi og veggjum. Þar er nýleg innrétting með speglaskáp með innbyggðri lýsinguEldhús er með innréttingu sem hefur verið máluð dökk og flísum á milli skápa sem einnig hafa verið málaðar Stofan og borðstofan er í sama rými með útgengi út á góðar suður svalirNýtt parket er á allri hæðinni og nýjar innihurðarEfri hæðSjónvarpshol er rúmgott með þakglugga, þar væri hægt að bæta við fjórða svefnherberginu Svefnherbergi með fataskáp og þakgluggaHjónaherbergið er mjög rúmgott með skápum á heilum veggÞvottahús, sem er einnig með salerni, er á efri hæðinni. Þar er þakgluggi sem veitir mikla birtu inn í rýmið, speglaskápur, nýleg innrétting, og tengi fyrir þvottavél og þurrkaraNýtt parket er á allri hæðinni og nýjar innihurðarGeymsla er í kjallara og er hún um 5 fm að stærð. Þá er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Örstutt er í alla þjónustu og er eignin í göngufjarlægð við matvöruverslun, tvo leikskóla og Setbergsskóla. Eign sem sannarlega er vert að skoða. Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu .Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.