Brúnavegur 10, fallegt sumarhús á tæplega eins hektara eignalóð á þessum vinsæla stað í Grímsnes og Grafningshreppi. Um er að ræða vel staðsetta endalóð, nægt heitt vatn með 7l hemil 60+ gráður og leyfilegt að byggja annann bústað á lóðinni.
Nánari lýsing: Forstofa, gangur/hol, bjart alrými sem saman stendur af stofu, borðstofu og snyrtilegu eldhúsi með góðu skápaplássi, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, rúmgott svefnloft, stór verönd með skemmtilegum pöllum og góðu úti plássi, heitur pottur, 20 feta vinnugámur fylgir með sem hefur verið notaður sem geymsla.
Snyrtilegt sumarhús sem hefur verið tekið mikið í gegn á afar smekklegan hátt, eign sem vert er að skoða
Nánari upplýsingar veitir: Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is