Gimli fasteignasala kynnir: Glæsileg og vel skipulögð 130,4 fm, fjögurra herbergja íbúð á annari hæð í nýlegu lyftuhúsi, auk 24,1 fm bílskúrs í bílakjallara, samtals 154,5 fm. Einnig fylgir aðgengi að bílastæði fyrir framan bílskúrinn. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, þar af ann... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Glæsileg og vel skipulögð 130,4 fm, fjögurra herbergja íbúð á annari hæð í nýlegu lyftuhúsi, auk 24,1 fm bílskúrs í bílakjallara, samtals 154,5 fm. Einnig fylgir aðgengi að bílastæði fyrir framan bílskúrinn. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, þar af annað innaf hjónaherbergi ásamt fataherbergi. Þá mynda eldhús og stofa sameiginlegt rými og þaðan er gengt út á svalir. Bókið tíma fyrir skoðun hjá Kristján Gíslason, löggiltur fasteignasali, í síma 6914252 eða með tölvupósti í NÁNARI LÝSING:Anddyri: Vinyl flísar á gólfi og stórir fataskápar.Hjónasvíta: Rúmgott hjónaherbergi, gengið í gegnum fataherbergi inná baðherbergi, sem er með walk in sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni.Svefnherbergi: Eru bæði ágætlega rúmgóð og annað þeirra með stórum fataskáp.Stofa og eldhús: Mynda eitt alrými, eldhús innrétting á einum vegg og stór eyja með span-suðu helluborði.Baðherbergi: Baðkar með sturtu, vegghengt salerni, handklæðaofn, góð innrétting í kringum vask og önnur innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á öllum veggjum og gólfi.Svalir: Gengt er út á 6,4 fm svalir úr stofu, svalalokun.Geymsla: Er í kjallara 6,6 fm með um 3,7m lofthæð og er inn í ferm. tölu íbúðar.Bílskúr: Gengið er inn í bílskúrinn af geymslugangi. Bílskúrinn er 24,1 fm með um 3,7 m lofthæð og er milliloft í innsta hluta skúrsins. Epoxy á gólfi, rafmagnsopnun á bílskúrshurð en einnig er eldvarnarhurð að utanverðu. 3ja fasa rafmagn er í skúrnum.Bílastæði: Afnotaréttur er af bílastæði í bílakjallara, fyrir framan bílskúrinn.Stór hjóla- og vagnageymsla er í sameign.Gólfhiti er í allri íbúðinni og á öllum gólfum er vinyl parket, nema baðherbergjum, þar eru flísar. Innréttingar í eldhúsi og baðherbergjum eru frá SCHMIDT og allir fataskápar sérsmíðaðir. Hvoru tveggja frá Parka.HÚSIÐ: Bríetartún 9-11 fjölbýlishús ásamt kjallara og neðri kjallara, samtals 94 íbúðir í séreign og eitt verslunarrými á jarðhæð. Flatarmál hússins er 10.565 fm og skiptist það í tvö stigahús, hvort um sig með tveimur lyftum, Bríetartún 9 (13 hæðir) og Bríetartún 11 (7 hæðir).Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.