Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.
*
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu íbúð 203 að Brekkustíg 33A í Reykjanesbæ. Rúmgóð þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli með svölum og sérmerktu bílastæði. Birt stærð er 78 fm.*** Járn á þaki, pappi og rennur endurnýjað 2023
*** Húsið var múrviðgert og málað að utan 2022
*** Nýleg gólfefni
*** Ný máluð íbúð
Komið er inn í bjartann og rúmgóðan gang með nýlegu gólfefni.
Gangurinn tengir saman öll rými á skipulegan hátt og þar er einnig fataskápur.
Eldhúsið er með eldri innréttingu beggja vegna, góðu skápaplássi og borðkrók undir glugganum. Parket á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum glugga og útgöngu á svalir. Parket á gólfi.
Íbúðin hefur
tvö svefnherbergi. Annað þeirra er með stóran innbyggðan skáp sem nær yfir heilan vegg. Parket á gólfi.
Baðherbergið er með baðkari og sturtu, frístandandi salerni og vaskaskáp ásamt speglaskáp. Dúkur á gólfi.
Þvottarýmið er innan íbúðar, er rúmgott með hillum og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara. Málað gólf.
Sérgeymsla á sameiginlegum geymslugangi jarðhæðar fylgir íbúðinni. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.Nánari upplýsingar veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, tölvupóstur haukur@allt.is.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.