Íbúð
Tveggja hæða einbýlishús. Neðri hæð: forstofa, gangur, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, bílskúr innréttaður sem sjónvarpsrými/svefnherbergi. Efri hæð: stofa/borðstofa/eldhús í opnu rými, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi. Útgengt á svalir úr stofu og á sólpall úr svefnherbergi á neðri hæð. Sólpallur snýr að hluta til suðurs og austurs.
Stofa
Í opnu og björtu rými með eldhúsi. Vínylparket á gólfi. Fallegt sjávarútsýni. Útgengt á svalir.
Eldhús
Í opnu rými með stofu/borðstofu. Steinn á borði og hluta af eyju. Tveir bakaraofnar. Nýtt spanhelluborð. Innbyggð uppþvottavél. Verður filmað. Sjávarútsýni.
Svefnherbergi
6 herbergi: Þrjú á neðri hæð (eitt breytt úr sjónvarpsholi), tvö á efri hæð. Rúmgóð með vínylparket/gólfflísar. Hjónaherbergi á efri hæð með mikið skápapláss. Útgengt á sólpall úr einu herbergi á neðri hæð.
Baðherbergi
Baðherbergi á neðri hæð: Vínylflísar á gólfi og veggjum, ný innrétting og vaskur, upphengt salerni, walk in sturta í epoxy sturtuklefa. Baðherbergi á efri hæð: Nýleg innrétting og vaskur, gott skápapláss, vínylflísar á gólfi, flísar á veggjum, walk in sturta, hornbaðkar, upphengt salerni.
Þvottahús
Þvottahús á neðri hæð með flot á gólfi. Rúmgóð innrétting frá Ikea. Útgengt á sólpall.
Geymsla
Rúmgóð geymsla á neðri hæð með góðum hillum.
Bílskúr
Innangengur bílskúr, 35,4 fm. Búið að breyta í sjónvarpsrými og svefnherbergi (hægt að breyta til baka). Undir gólfefnum er epoxy gólf. Rafhleðslustöð við hurð.
Garður
Sólpallur snýr að hluta til suðurs og austurs, nýlega málaður. Við lóðamörk: plantað um 150 trjám (jörfavíði), jarðvegsskipta og torf lagt.
Svalir/þak
Svalir útgengdar úr stofu.
Önnur herbergi
Bílskúr breyttur í sjónvarpsrými og svefnherbergi.