***Glæsileg íbúð í nýuppgerðu húsi í hjarta Reykjavíkur***Stakfell fasteignasala kynnir í einkasölu: 52,9 fm stúdíóíbúð við Brautarholt 18, 105 Reykjavík. Íbúð 402 á fjórðu hæð, ásamt geymslu í sameign. Húsið hefur verið endurbyggt á glæsilegan hátt þar sem hefur verið mikið lagt upp úr hönnun og fr... Sýna meira
***Glæsileg íbúð í nýuppgerðu húsi í hjarta Reykjavíkur***Stakfell fasteignasala kynnir í einkasölu: 52,9 fm stúdíóíbúð við Brautarholt 18, 105 Reykjavík. Íbúð 402 á fjórðu hæð, ásamt geymslu í sameign. Húsið hefur verið endurbyggt á glæsilegan hátt þar sem hefur verið mikið lagt upp úr hönnun og frágangi með umhverfisvænan og nútímalegan lífstíl að leiðarljósi. Íbúðin er laus til afhendingar eigi síðar en í lok ágúst.Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og lögg. fasteignasali í síma 690 4966 eða Nánari lýsing: Íbúð 48,1 fm og geymsla 4,8 fm. Samtala 52,9 fm. Svalir, 2,2 fm, gengið út frá alrými.Skemmtileg 52,9 fm stúíóíbúð á fjórðu hæð í nýuppgerðu lyftuhúsi, miðsvæðis í Reykjavík. Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsinnréttingu og baðherbergi. HTH innréttingar og fataskápar, dökkgráar að lit og borðplötur í dökkbrúnum lit, Hickory. Innfelld rúm með fimm stjörnu heilsudýnu og hillur í kring. Vinylparket er á gólfum að undanskildum baðherbergjum þar sem eru flísar. Raftæki eru frá Ormson; AEG, Zanussi og Airforce.Bakhús er á lóð með sameiginlegu þvottahúsi, hjólageymslu, sameiginlegum sal og ruslageymslu.Glæsileg, ný íbúð á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík. Fjölbreytt þjónusta, verslun, samgöngur og menningarlíf miðbæjarins í göngufjarlægð.Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu undanfarin ár og er áætluð áfram á komandi árum. Samkvæmt deiluskipulagi verður Hlemmur tengipunktur almenningssamgangna bæði borgarlínu og strætóleiða. Aðgengi vistvænna ferðamáta og skilyrði til fjölbreytts mannlífs verða bætt verulega samkvæmt deiluskipulagi á komandi misserum.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.