* SÖLULÝSING (sem birtist á netinu) *
Domusnova Borgarnesi er með til sölu snyrtilega 98,7 fm. 4ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngang við Borgarbraut 1-3, 310 Borgarnesi.*** BÓKIÐ SKOÐUN í síma 895-3868 eða á netfangið bergthora@domusnova.is ***Borgarbraut 1-3 er 4 hæða steinsteypt hús.
Íbúð 203 hefur sérinngang, aðkoma fyrir aftan hús frá sameiginlegri hellulagðri verönd. Eignin er
98,7 fm.
að stærð og skiptist í anddyri, miðrými/hol, stofu, eldhús m. borðkrók, þrjú herbergi, baðherbergi og geymslu. Á 1. hæð hússins er hefðbundin sameign m/hjóla- og vagnageymslu.
Nánari lýsing:Anddyri: Fatahengi.
Millihurð. Flísar á gólfi.
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum, ljós borðplata. Ný eldavél og eldhúsvifta. Borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með speglaskáp. Gólfsalerni. Sturtubotn með hengi. Handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél. Veggflísar hjá sturtu. Flísar á gólfi.
Herbergi I: Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi II: Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi III: Parket á gólfi.
Geymsla: Innan íbúðar er geymsla. Veggfastar hillur. Dúkur á gólfi.
Eignin er rúmgóð og vel skipulögð, staðsett miðsvæðis í gamla bænum þar sem m.a. er stutt í grunnskóla og íþróttasvæði. Búið er að skipta um glugga á suðurhlið f. utan einn, nýtt gólfefni í forstofu og er íbúðin nýmáluð.
Afhending eignar getur verið við kaupsamning.
Lyklar eru á skrifstofu og hægt að bóka skoðun með stuttum fyrirvara.Nánari upplýsingar veita:Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
- SÖLULÝSINGU LOKIÐ -----------------------------------------------------------
* SÖLUYFIRLIT (Til viðbótar) *Framkvæmdir sögn seljanda frá 2024- Íbúðin verið málið
öll eða?- Ný eldavél og vifta/gufulgeypir fyrir ofan eldavél
- Skipt um gólfefni í forstofu
- Skipt um salerni
- Skólplögn mynduð, ekkert sem beinti til að eitthvað væri í ólagi.
Galli / Kaupanda bent sérstaklega á- Gólfhalli í miðrými
- Móða í glugga inn í stofu sem ekki er búið að skipta um
- Filma léleg að hluta í baðherbergisglugga
Húsfélag: Virkt húsfélag er í heildahúsinu sem telur Borgarbraut 1-3 og Egilsgötu 2, kaupir það þjónustu af fyrirtækinu Eignaumsjón ehf. sem heldur utanum rekstur þess ásamt eigendum.
Yfirlýsing húsfélags: Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags, dags. 17.3.2026 er heildarstaða bankareikninga húsfélagsins er
kr. 8.202.230.- Engar yfirstandandi framkvæmdir eru á vegum húsfélagsins en
fyrirhugaðar framkvæmdir eru eftirfarandi skv. yfirlýsingu húsfélags:
- Á aðalfundi 2024 var bent á að gluggar á norðurhlið séu komnir á tíma. Sjá aðalfundargerð 04.03.2024
- Á aðalfundi 2026 var samþykkt tilboð í lagnavinnu. Einnig var samþykkt að fá tilboð í viðgerð á tröppum. Rætt var um mikilvægi þess að fara í framkvæmdir til þess að bæta brunaöryggi hússins, þar sem brunavörnum er ábótavant. Rætt var um að byggja skýli fyrir sorpið. Sjá aðalfundargerð 16.febrúar 2026.
Húsfélagsgjald eignar eru kr. 34.195.- á mánuði sem skiptist í:- Hiti, kr. 9.240.-
- Húseigendatrygging, kr. 4.296.-
- Almenn húsgjöld, kr. 6.750.-
- Framkvæmdasjóð, kr. 13.909.-
- Tilkynninga- og bankagjald, kr. 320.-Eignaskiptayfirlýsing:Birt stærð séreignar, 98,70 fm.
Hlutfallstala í húsi, 10,63%
Hlutfallstala í lóð 11,69%
Hlutfallstala heitavatnskostnaður, 16,667 %
Hlutfallstala rafmagnskostnaður, 100,00%
Kvöð: Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu hafa eigendur gert samkomulag um samnýtingu lóðanna, Borgarbraut 1-3 og Egilsgötu 2, m.t.t. notkunar á þvottasnúru og aðgengis að eignum í húsinu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.