Eignamiðlun kynnir:Einstaklega falleg og vel um gengin 83 fermetra þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð á Boðagranda 1. Íbúðin sjálf er 77 fermetrar og geymsla í kjallara 6 fermetrar. Tvö góð herbergi, sjónvarpsrými, stórt eldhús með hvítlökkuðum innréttingum, falleg stofa með birtu úr tveimur áttum ... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Einstaklega falleg og vel um gengin 83 fermetra þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð á Boðagranda 1. Íbúðin sjálf er 77 fermetrar og geymsla í kjallara 6 fermetrar. Tvö góð herbergi, sjónvarpsrými, stórt eldhús með hvítlökkuðum innréttingum, falleg stofa með birtu úr tveimur áttum og stórum svölum til suðurs. Gott útsýni úr stofu yfir KR-völlinn og til fjalla. Bæði íbúðin og húsið hafa fengið gott viðhald og umhirðu undanfarin ár. Falleg, vel nýtt eign sem vert er að skoða.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða .Komið er inn í nýlega endurnýjaðan stigagang, nýlega málað og skipt um teppi. Húsið hefur verið mikið endurnýjað undanfarin ár, múrviðgert og málað árið 2017, skipt um flesta glugga í húsinu og allt gler. Lokafrágangur viðhalds að utan 2020.Gengið er inn í hol íbúðarinnar þar sem sjónvarpsrými er til vinstri og herbergi og bað til hægri. Holið opnast til stofu, eldhús til vinstri þegar komið er fram hjá sjónvarpsrými. Stofa er mjög björt með stórum gluggum til suðurs og einum til vesturs, og rúmgóðum svölum með nýlegum harðviðarflísum.Eldhús er með rúmgóðri hvítlakkaðri innréttingu með línmtrésborðplötum og flísum á milli skápa. Gott skápapláss og nægt vinnupláss.Svefnherbergið er með stórum hvítlökkuðum fataskáp á heilum vegg. Minna herbergið er með fataskáp. Sjónvarpsrýmið kemur vel út og eykur mjög nýtingu íbúðarinnar.Baðherbergi er mjög smekklega endurnýjað með sturtu, vegghengdu salerni, innréttingu og flísum.Á öllum gólfum öðrum en baði er fallegt eikarparket. Núverandi eigandi íbúðarinnar hefur endurnýjað innihurðir, endurlakkað fataskápa og eldhúsinnréttingu, endurnýjað baðherbergi og endurnýjað rafmagnstengla og rofa, ásamt því að breyta sjónvarpsholi í núverandi mynd.Í kjallara er, auk geymslu, sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.Notaleg og falleg íbúð, bjartar stofur, góð nýting og gott viðhald.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.isÁbyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögumHeimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook Fletta í fasteignalista