Fasteignasalan TORG kynnir: Opið hús mánudaginn 20 jan. kl. 17:30-18:00 / Laus við kaupsamning. Glæsileg og rúmgóð íbúð á 3.hæð ásamt bílskúr, heildar stærð er 155,1fm þar af bílskúr 31,0fm. Íbúðin hefur öll verið endurinnréttuð og var þeirri framkvæmd að ljúka, íbúðin skiptist í eldhús með vandaðri... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Opið hús mánudaginn 20 jan. kl. 17:30-18:00 / Laus við kaupsamning. Glæsileg og rúmgóð íbúð á 3.hæð ásamt bílskúr, heildar stærð er 155,1fm þar af bílskúr 31,0fm. Íbúðin hefur öll verið endurinnréttuð og var þeirri framkvæmd að ljúka, íbúðin skiptist í eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum, stór og björt stofa, 3 svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi með þvottaaðstöðu. Allar innréttingar, fataskápar, hurðar, gólfefni og tæki eru ný í íbúðinni auk þess sem dregið hefur verið nýtt rafmagn í alla íbúðina og rofar endurnýjaðir. Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á húsinu en hússjóður stendur vel.Einstaklega vel hönnuð og fallega innréttuð íbúð ásamt bílskúr.Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á Sækja söluyfirlit hérNánari lýsing: Forstofuhol með fataskáp, harðparketi á gólfi.Eldhús tengist stofu í opnu rými, í eldhúsi er ný hvít sprautulökkuð innrétting með miklu skápapláss og flísalagt milli skápa, eldunareyja með nýjum vönduðum tækjum, harðparket á gólfi.Stofa er mjög rúmgóð og björt, stofan tengist eldhúsi í opnu rými, harðparket á gólfi og útgengi á stórar suður svalir.Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum og harðparketi á gólfi.Barnaherbergi eru 2, annað herbergið er rúmbetra og með fataskáp, harðparket á gólfum.Baðherbergi er glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf, vönduð innrétting, stór flísalögð sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Hiti er í gólfi. Bílskúr er 31,0 fm, heitt og kalt vatn, innst í skúrnum er vinnuborð.Geymsla 7,1 fm er í sameign.Húsið þarfnast orðið viðhalds að utan en staða hússjóðs er mjög góð, sjá nánar húsfélagsyfirlýsingu og aðalfundargerð.Mjög rúmgóð og smekklega innréttuð íbúð þar sem stutt er í skóla, verslun og þjónustu í hverfinu.Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.