***Áður auglýst opið hús fellur niður þar sem eignin er seld***LIND fasteignasala kynnir virkilega fallega, bjarta og einstaklega vel skipulagða 3.herbergja 85,1 m2 íbúð á jarðhæð með stórri verönd í 6 íbúða viðhaldsléttu álklæddu húsi við Blikaás 17. Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is Nánari lýsing eignar.Forstofa með fataskáp og flísalögðu gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á stóra afgirta verönd til suðurs og vesturs.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og viðarinnréttingu.
Svefnherbergin eru tvö og eru þau parketlögð með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu.
Geymsla er staðsett innan íbúðar.
Þvottahús er staðsett innaf geymslu. Í þvottahúsi eru flísar á gólfi og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Í sameign er hjóla og vagnageymsla.
ATH: Seljandi hefur ekki búið í íbúðinni og þekkir því hvorki né getur borið ábyrgð á ástandi hennar umfram það sem sjá má við venjulega sjónskoðun. Kaupendum er því bent á að kynna sér ástand eignarinnar vel og leita sér eftir atvikum aðstoðar sérfróðra manna við skoðun.
Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.