Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu. Bláhamra 4, 112 Reykjavík, fallega og töluvert endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsnæði. Gluggar í þrjár áttir. Verönd sem snýr til suðurs.Birt stærð eignar samkvæmt þjóðskrá er 101,9 fm þar af 25,8 fm bílastæði í lokuðum bílakjallara. Raunstærð... Sýna meira
Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu. Bláhamra 4, 112 Reykjavík, fallega og töluvert endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsnæði. Gluggar í þrjár áttir. Verönd sem snýr til suðurs.Birt stærð eignar samkvæmt þjóðskrá er 101,9 fm þar af 25,8 fm bílastæði í lokuðum bílakjallara. Raunstærð íbúðar er hinsvegar 76,1 fm þar af 5,3 fm geymsla í kjallara. Frekari upplýsinga veitir Sara Margrét Sigurðardóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 8220876 eða og Óskar fasteignasali / lögmaður. Nánari lýsing:Íbúðin er afar björt og vel skipulögð með glugga í þrjár áttir. Parket, hurðar og eldhúsinnréttingar endurnýjað árið 2017. Baðherbergi gert upp árið 2019.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða stofu, gang, baðherbergi og svefnherbergi. Úr stofu er síðan útgengt á stóra sameiginlega verönd sem snýr í suður. Íbúðin er bæði flísalögð og parketlögð að hluta.Forstofa: Gengið er inn um sérinngang frá svölum inn í afar rúmgóða og flísalagða forstofu. Vel hægt að koma fyrir fataskáp eða annarskonar geymslu einingu.Eldhús: Staðsett á hægri hönd frá forstofu. Nýlegt eldhús (2017) með miklu skápaplássi, innréttingu á tveimur veggjum og eyju sem hægt er að sitja við. Parket á gólfi og flísar á vegg yfir helluborði og vask. Opnanlegur gluggi sem snýr til norðurs. Gangur: á vinstri hönd frá forstofu er síðan gengið inn um parketlagðan gang með góðum fataskáp. Þaðan er innangengt inn á bað og svefnherbergi. Baðherbergi: Töluvert endurnýjað baðherbergi (2019). Flísar á gólfi, fibo trespo á veggjum. snyrtileg hvít innrétting og speglaskápur. Vegghengt klósett og sturtubotn með glerskilrúmi. Opnanlegur gluggi sem snýr til austurs.Svefnherbergi: Fallegt parketlagt svefnherbergi með stórum spegla fataskáp og glugga sem snýr til suðurs.Stofa: Einstaklega björt og rúmgóð, parketlögð stofa með stórum gluggum sem snúa til suðurs. Hluti af stofu er flísalagður sólskáli þar sem útgengt er út á verönd.Verönd: Gengið er út á stóra afgirta verönd sem er í sameiginlegri notkun 3ja íbúða á hæðinni, staðsett ofan á bílastæðahúsinu. Veröndin snýr til suðurs og er því afar veðursæl. Geymsla: Sér geymsla í kjallara.Bílastæði: Eigninni fylgir bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Sameign: Hægt að ganga inn í sameign bæði norðan megin og sunnan megin við húsið, sjálfvirkir hurðaopnarar. Sameiginlegt þvottaherbergi staðsett á jarðhæð. Snyrtilegt með máluðu gólfi. Tvær iðnaðarþvottavélar og þurrkari í eigu húsfélagsins. Vinnuborð og þvottasnúrur.Rúmgóð vagna- og hjólageymsla.Fyrirhugað fasteignamat ársins 2024 er 53.650.000 kr.Nánari upplýsingar veitir:Sara Margrét Sigurðardóttir/ aðstoðarmaður fasteignsala í síma 8220876 eða og Óskar fasteignasali / lögmaður. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.