** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Bjarta, rúmgóða 89,4 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með sérinngangi af svölum í góðu fjölbýli í Hamrahverfinu í Grafarvogi.
Eignin er mikið endurnýjuð að innan og virðist húsið einnig hafa fengið gott viðhald að utan.
HÉR eru allar upplýsingar um eignina. SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D 3D - ER = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.2024 - Endurbætur:- Gólfefni - Parket frá Birgisson ehf.
- Baðherbergi- Vínyl parket, sturtuklefi og speglaskápur.
- Eldhús - Efriskápar og í kringum ísskáp bætt við
- Hjónaherbergi - Fataskápar frá IKEA (opnir)
- Forstofan - bætt við fataskápinn
- Íbúðin öll máluð - bæði veggir og gluggar.
- 2019 / 2020 - Skipt um rennur og flasningar á húsi.
Innan íbúðar eru: Forstofa
, eldhús, stofa, borðstofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi, .
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í opnu björtu rými með gluggum bæði til suðurs og norðurs, parketi á gólfi og útgengi á góðar suður svalir úr stofunni.
Eldhúsinnréttingin er hvít háglans með span helluborði og bakaraofni í eyju og háfur þar yfir, góðu skáparými, innbyggðum ísskáp (keypt 2024) og uppþvottavél sem fylgja með og parket á gólfi.
Herbergi I er barnaherbergið sem er í góðri stærð með góðum fataskápum, gluggum til norðurs og parketi á gólfi.
Herbergi II er hjónaherbergið sem er rúmgott með góðum opnum fataskápum, gluggum til suðurs og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með salerni, sturtuklefa úr Bauhaus, hvítri nnréttingu undir og við handlaug og vínylparketi á gólfi.
2024 var íbúðin öll máluð bæði veggir og gluggar, parket (frá Birgisson) lagt á íbúðina utan votrýma
Sér geymsla íbúðar er á jarðhæð í sameign með veggföstum hillum á einum vegg.
Í
sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sérmerkt bílastæði íbúðar er merkt - 25 - og hefur fyrri eigandi lagt lögn að bílastæði íbúðar fyrir hleðslustöð en núverandi eigandi hefur ekki nýtt það.
Birt stærð íbúðar er 85,4 fm (02-0202) og
geymslu er 4,0 fm (sjá eignaskiptayfirlýsingu),
sem gerir alls 89,4 fm skv. Eignaskiptayfirlýsingu. Bláhamrar 25 stendur á sameiginlegri lóða húsanna Bláhamrar 1-15 og Bláhamrar 17-29 og eru allar íbúðir með sérmerkt bílastæði.
Húsfélag er fyrir Bláhamra 17 - 29 og Lóðarfélag fyrir Bláhamra 1-15 og 17-29.
Um er að ræða vel staðsetta eign í sérlega rólegu og grónu hverfi.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAX Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk