** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 109,4 m2, 4ra herbergja íbúð á 4. hæð með fallegu útsýni og bílastæði í bílageymslu við Bjarkarholt 7 í miðbæ Mosfellsbæjar. Húsið... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 109,4 m2, 4ra herbergja íbúð á 4. hæð með fallegu útsýni og bílastæði í bílageymslu við Bjarkarholt 7 í miðbæ Mosfellsbæjar. Húsið er byggt 2020. Eignin er skráð 109,4 m2, þar af íbúð 105,4 m2 og geymsla 4,0 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu. Sérgeymsla í kjallara. Svalir í suðurátt. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur. Eldhús, stofa og borðstofa: Saman í rúmgóðu opnu rými. Falleg L-laga eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp. Gengið út á suðursvalir frá stofu. Parket á gólfi.Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi): Parket á gólfi og gott fataherbergi. Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.Svefnherbergi 3: Parket á gólfi og fataskápur.Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, upphengt salerni, handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél. Stór skápur.Svalir: Rúmgóðar 6 m2 svalir til suð-austurs með frábæru útsýni.Geymsla: Sérgeymsla í sameign í kjallara, merkt 0007.Bílastæði: Stæði merkt 01B06 fylgir eigninni.Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara hússins.Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Matvöruverslun er á fyrstu hæð.Fyrirhugað fasteignamat 2024 er kr. 73.700.000Verð kr. 75.900.000,-Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.