Fasteignasalan Garður Mjög rúmgóð og vel skipulögð 96.4 fm 3ja herbergja með sérinngangi af svölum á 3ju hæð og efstu hæð í húsinu.Norðlingaholtið er fallegt og nýlegt hverfi sem staðsett er í náttúruparadís mitt á milli Rauðavatns, Víðidals, Elliðavatns og Rauðhóla.Nánari upplýsingar gefur Halldór ... Sýna meira
Fasteignasalan Garður Mjög rúmgóð og vel skipulögð 96.4 fm 3ja herbergja með sérinngangi af svölum á 3ju hæð og efstu hæð í húsinu.Norðlingaholtið er fallegt og nýlegt hverfi sem staðsett er í náttúruparadís mitt á milli Rauðavatns, Víðidals, Elliðavatns og Rauðhóla.Nánari upplýsingar gefur Halldór Freyr, Löggiltur fasteignasali, S:693-2916, Sérþvottahúsi innan íbúðarinnar og stórar suð- austur svalir með flottu útsýni. Stutt í strætó, skóla og leikskóla. Gæludýr eru leyfð og er sérinngangur af svölum í íbúðina.Sérinngangur af svölum lengst til vinstri og þar sem íbúðin er endaíbúð í þessum stigang þá er enginn annar sem gengur fyrir framan þessa íbúð á svalaganginum. Aukin lofthæð er í íbúðinni og og er loftæð á milli 280 -290.Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa með flísum á gólfi, hilla og góður fataskápur upp í loft. Gangur og hol með eikarparketi á gólfi.Gott hjónaherbergi með eikarparketi á gólfi, góður fjórfaldur skápur upp í loft. Barnaherbergið er með eikarparketi á gólfi, góður skápur upp í loft. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggnum, upphengt wc, loftöndun, handklæðaofn og góð innrétting með skúffum og skáp, spegill. Sérþvottahús er innan íbúðarinnar við hlið baðherbergis og eru þar flísar á gólfi, blöndurnar tæki og hillur. Eldhúsið er opið og bjart með eikarparketi á gólfi, góð innrétting, uppþvottavél sem fylgir með, stállit tæki með keramic helluborði. Góð borðaðstaða við glugga með flottu útsýni.Opið yfir í stofuna.Mjög stórar suð- austur svalir með flottu útsýni.Björt og góð stofa og borðstofa með eikarparketi á gólfi, útgangur á stórar suður svalir með flottu útsýni. Sameign: Sameign er samkvæmt eignaskiptasamningi sameiginleg hjóla og vagnageymsa í kjallara ásamt sérgeymslu fyrir íbúðina. Húsið: Húsið er fallegt steinsteypt og steinað hús sem er byggt 2007 og er það á þremur hæðum auk kjallara og eru allar íbúðir hússins með sérinngangi. Lóðin: Lóðin er sameiginleg og gróin. Fjöldi bílastæða á lóð ásamt hleðslu fyrir rafbíla. Eignin er frábærlega vel staðsett með tilliti til allrar almennrar þjónustu eins og strætó, skóla, leikskóla og útivistar.Örstutt í skólana og heillandi náttúru við Elliðavatn, Heiðmörk, Rauðhóla, Rauðavatn og Hólmsheiði ásamt því að vera í göngufæri við hesthúshverfið í Víðidal.Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður