Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Torg fasteignasala kynna fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi við Bjallavað 15 Eignin sem um ræðir er á 2. hæð íbúð 206, skráð samtals 112,2 m2 en þar af er geymslan 9,7 m2. Gengið er upp á 2. hæð og út í enda til hægri séð út frá bílastæ... Sýna meira
Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Torg fasteignasala kynna fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi við Bjallavað 15 Eignin sem um ræðir er á 2. hæð íbúð 206, skráð samtals 112,2 m2 en þar af er geymslan 9,7 m2. Gengið er upp á 2. hæð og út í enda til hægri séð út frá bílastæði fyrir framan húsið. Komið er inn í forstofu, þaðan inn í hol en til vinstri er rúmgott herbergi en til hægri er hjónaherbergi. Við hlið hjónaherbergis er þvottahús og baðherbergi. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými og eitt rúmgott herbergi er staðsett nærri borðstofu. Nánari lýsing: Forstofa: flísar á gólfi og fataskápur.Hol: parket á gólfi.Herbergi I: parket á gólfi og fataskápur.Hjónaherbergi: parket á gólfi, fataskápar, rúmgott herbergi.Þvottahús: flísar á gólfi og skolvaskur.Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, baðkar.Eldhús: parket á gólfi, veggföst eyja, gott skápapláss.Stofa- og borðstofa: parket á gólfi, bjart og opið rými, frá stofu er gengið út á svalir sem snúa í suð-austur.Herbergi II: parket á gólfi og fataskápur.Geymsla: sér geymsla skráð 9,7 m2 staðsett í sameign á jarð hæð. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign á jarðhæð, næg bílastæði fyrir utan húsið og fjórar rafhleðslustöðvar á sameiginlegu bílaplani Bjallavaðs 13, 15 og 17. Eignin er staðsett á góðum stað í Norðlingaholti, spölkorn frá þjónustukjarna, Bónus og apótek svo eitthvað sé nefnt og þá er Norðlingaskóli í göngufæri. Að sögn eiganda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað innan eignarinnar: Árið 2023 var eldhús og stofa málað. Árið 2022 var loft í baðherbergi málað, settur upp spegill með lýsingu og nýtt sturtugler. Árið 2022 var epoxý sprautað inn á milli glugga sem snúa í austur, gluggar pússaðir og málaðir eftir það. Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.