Eignamiðlun kynnir:
Vandað og flott 305 fm. einbýlishús með bílskúr við Bergastaðastræti 84, 101 Reykjavík. Tvær innkeyrslur eru við húsið.
Í húsinu eru fimm herbergi, þrjár stofur, tvö baðherbergi og eitt gestasalerni.
Húsið er mjög vel staðsett neðan við götu með góðum suðurgarði.
Húsið hefur fengið gott viðhald og allar endurbætur á því hefur verið með vandaðasta móti;
Fyrir um 20 árum var eignin uppgerð að innan, þ.m.t. voru endurnýjuð gólfefni, innréttingar, lýsing, lagnir, rafmagn, gluggar yfirfarið og einangrað að innan.
Húsið var stækkað á þessum tíma um 50 fm, byggð var viðbygging þar sem stækkar kjallarann og gefur góða stofu/sjónvarsrými.
Bókið skoðun hjá Guðlaugi í síma 864-5464 eða með tölvupósti á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is Aðalhæð hússins: Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum og aðgengi inn á gestasalerni, þar er opnanlegur gluggi, ljósar flísar upp miðjan vegg að hluta. Handlaug og upphengt salerni. Frá forstofu er komið inn í bjart og opið hol með flísum á gólfi. Þar er hátt til lofts og glæsilegur teppalagður stigi með aðgengi upp á efri hæð hússins. Frá holinu/stigagangi er gengið inn í eldhús, og stofu sem er samliggjandi borðstofu. Eldhúsið er með niðurtekið loft, innfelld ljós og með sömu flísum á gólfi og eru í holinu og inn í forstofu. Eldhúsinnrétting er L-laga og með eyju sem er áföst við einn vegg. Innréttingin er hnota og með hvítum stein á borðum og undirlímdan vask. Við eldhúsið er rúmgóð borðstofa sem liggur samliggjandi með stofu, bjartar og rúmgóðar stofur. Gegnheilt niðurlímt parket er á gólfum inn í stofum og inn í borðstofu. Útgengi er út frá borðstofu út á svalir og frá svölum niður í afar skjólsælan, stóran og gróinn suðurgarð.
Efri hæð hússins Á efri hæð er komið upp í alrými með niðurlímt parket á gólfi. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi og eitt sjónvarpsherbergi sem auðvelt að breyta í svefnherbergi. Gott herbergi sem er í dag notað sem fataherbergi og auðvelt er að breyta aftur í herbergi. Öll herbergin eru með niðurlímt parket á gólfum. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með útgengi út á suðursvalir og rúmgóðu fataherbergi innaf sem áður var svefnherbergi og hægt að breyta til baka. Á hæðinni er einnig baðherbergi með flísum á gólfi. Sturta og dökk innrétting með hvítri handlaug og skúffum þar fyrir neðan. Upphengt salerni og aðstaða fyrir þvottavél.
Kjallari hússins: Frá aðalhæð hússins er gengið niður stiga inn í hol með aðgengi að öðrum rýmum hæðarinnar. Kjallarinn er að hluta með fullri lofthæð og sér inngangi. Þar er stofa/sjónvarpshol með tvöfaldri útgangshurð og parketi á gólfi. Góð skjólsæl verönd með heitum potti. Þar við hlið er rúmgott herbergi. Á hæðinni er auk þess eldhús sem áður var þvottahús. Auk þess er baðherbergi á hæðinni
Bílskúr hússins: Bílskúrinn er 19,3 fm og bílastæði við bílskúr.
Garðurinn: Hann er afar skjólsæll og gróinn suðurgarður.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook