Albert Bjarni og LIND fasteignasala, kynna afar fallega og bjarta
4-5 herbergja
útsýnis endaíbúð á tveimur hæðum með
bílskúr á þessum skemmtilega stað í Grafarvoginum.
Íbúðin skiptist í: neðri hæð með forstofu, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi og þvottahús. Á efri hæð er opið rými og svefnherbergi. Á jarðhæð við hlið inngangs er
bílskúr, geymsla og sameiginlegar hjóla og vagna geymslur.
Allar upplýsingar um eignina veitir
Albert Bjarni fasteignasali í síma
8210626 eða
albert@fastlind.isNánari lýsing: komið er inn í fallega
forstofu með fataskápum. Við forstofuna er
svefnherbergi með fataskápum. Falleg samliggjandi
stofa og
borðstofa með útgangi á svalir til suðurs. Úr stofu er myndarlegur steinhringstigi á efri hæð.
Eldhúsið er fallegt með innréttingu og góðu skápa og borðplássi.
Svefnherbergi með fataskáp og fallegu útsýni í skrúðgarð og Esjuna.
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, falleg innrétting með uppsettum speglaskáp, handklæðaofni, sturtu og útloftunartúðu.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél/þurrkara, handklæðaofn, vaskur og skápur. Á efri hæð er opið rými sem er í dag nýtt sem
sjónvarpsstofa og vinnuaðstaða. Rúmgott
svefnherbergi með útgangi á svalir til norðurs, það er afar fallegt útsýni að Esju og í skrúðgarðinn. Á gólfum eignarinnar er parket nema á baði og þvottahúsi þar sem eru flísar. Í sameign er 6,8 fm sér
geymsla og tvær sameiginlegar geymslur. 24,3 fm
bílskúr sem er við innganginn, flísalagður með nýlegri hurð og sjálfvirkum opnara. Það er heitt og kalt vatn, vaskur í innréttingu í bílskúrnum. Heildarstærð er alls
152,8fm, þar af er íbúðin 121,7fm en er
stærri af gólffleti því hluti er undir súð, bílskúr
24,3fm og geymsla 6,8fm.
Afar falleg sameiginleg skjólgóðri lóð að evrópskri fyrirmynd. Afar gott aðgengi með
næg bílastæði. Í hverfinu eru margir leikvellir og
ærslabelgur skammt frá eigninni sem er vinsælt leiksvæði krakka í hverfinu. Stutt er í útivistarsvæði í Grafarvoginn, s.s. Geirsnef, Hamrana, Voginn og alla helstu þjónustu s.s. skóla og leikskóla, verslanir, veitingahús, líkamsræktarstöðvar, strætóstöðvar o.fl.
Allar upplýsingar um eignina veitir
Albert Bjarni fasteignasali í síma
8210626 eða
albert@fastlind.isAllir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú
30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum:
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.