Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu þriggja herbergja steypt raðhús við Báruklöpp nr. 21 í Garði, Suðurnesjabæ.Byggingaraðili:
Bragi Guðmundsson ehf. - er húsbyggjandi og ábyrgðaraðili verksins. Framúrskarandi og traustur verktaki með áratuga reynslu.Um er að ræða vel skipulagt og vandað raðhús sem skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu.
Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.
Hol er parketlagt.
Stofa er parketlögð og hurð er út á verönd frá stofu.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er vegleg innrétting með góðum tækjum, ofn, hellurborð og vifta.
Á baðhebergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er falleg innrétting og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni, sturtuaðstaða stúkuð af með gleri og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru tvö, þau eru bæði parketlögð og skápar eru í báðum herbergjum.
*Gólfhiti er í öllum gólfum.
*Steypt innkeyrsla og stétt með snjóbræðslulögn
*Lóð er fullfrágengin með torfi og verönd er á baklóð.
*Sorptunnuskýli.
Stutt er í skóla og leikskóla. Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
S: 420-4000 / 863-4495 - dori@studlaberg.is