Valhöll fasteignasala kynnir nýlega og stórglæsilega 3ja herbergja hönnunaríbúð á efstu hæð, “penthouse stíl”, með einstökum 45,6 fm þaksvölum til suðurs með heitum potti ásamt stæði í bílageymslu á besta stað í bænum á horni Hverfisgötu og Barónstígs í miðbæ Reykjavíkur. Í heildina er eignin skráð ... Sýna meira
Valhöll fasteignasala kynnir nýlega og stórglæsilega 3ja herbergja hönnunaríbúð á efstu hæð, “penthouse stíl”, með einstökum 45,6 fm þaksvölum til suðurs með heitum potti ásamt stæði í bílageymslu á besta stað í bænum á horni Hverfisgötu og Barónstígs í miðbæ Reykjavíkur. Í heildina er eignin skráð 106,6 fm á stærð sem skiptist í 97,5 fm íbúð og 9,1 fm geymslu í kjallara. Þaksvalirnar eru umfram skráða fermetra. Eignin er sérlega vönduð og allt efnisval smekklega hannað og valið af Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnar innanhúshönnuðum, Rut Káradóttir hannaði anddyri hússins. Það eru eingöngu tvær íbúðir á hæðinni. Í eldhúsi og baðherbergi eru borðplötur úr ljósu kvarts efni og vaskar undirlímdir. Innréttingar og fataskápar eru sérsmíðaðar með svartlökkuðum viðarspón og ná upp að lofti. Innihurðir eru sömuleiðis úr svartlökkuðum viðarspón sem gefur fallegan heildarsvip yfir íbúðina. Ljóst harðparket er á gólfum og flísar á baðherbergi. Gólfhiti er íbúðinni með stýringum fyrir hvert herbergi.Þaksvalirnar eru hellulagðar og viðarklæðning á veggjum við svalirnar gefur hlýlegt og fágað yfirbragð. Þær eru afar sólríkar, snúa mót suðri en njóta einnig austur og vestur sólar. Heitur pottur er á svölunum. Húsið er einangrað og klætt að utan með sérlega fallegri læstri álklæðningu frá Prefa í Þýskalandi sem er með mismunandi litum og áferð og gerir húsið sérlega glæsilegt og einstakt. Öll hönnun hússins miðar að því að frágangur verði vandaður og viðhaldsléttur.Íbúðir eru á 2. - 5. hæð og verslunar- og veitingarými á jarhæð. Opnunartími atvinnurýma á jarðhæð er eingöngu til 23:00.Myndavélakerfi er í sameign hússins ásamt talnakóðastýringu á helstu aðgangsrýmum. Þetta er glæsileg íbúð á besta stað í miðbæ Reykjavíkur, íbúðin er í mikilli nálægð við menningu miðbæjarins en nógu fjarri til að vera laus við óæskilegan nið sem getur fylgt næturlífinu. Nánari lýsing:Anddyri: með fataskáp.Svefnherbergi I: með fataskáp og fallegum gólfsíðum glugga með útsýni yfir á Perluna.Svefnherbergi II: með fataskáp.Baðherbergi með innréttingu, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara inn í innréttingu, upphengdu og innbyggðu salerni, “walk in” sturtu og handklæðaofni.Eldhús: með stórri eyju, AEG spanhelluborði og innbyggðri viftu, AEG blástursofni, uppþvottavél, tvöföldum LG ísskáp með klakavél sem fylgir.Stofa og borðstofa: í opnu og stóru alrými með eldhúsinu, með innfelldri lýsingu í lofti, gólfsíðum og björtum gluggum og útgengi á þaksvalir.Sameiginleg hjólageymsla: í kjallara með góðri líkamsræktaraðstöðu.Sérgeymsla: upphituð í kjallara inn af bílageymslu.Sérbílastæði í bílageymslu: Hleðsla er komin fyrir rafmagnsbíl. Mögulegt er að leigja auka bílastæði á Vitatorgi fyrir 9000kr á mánuði.Sameiginlegur garður: Lokaður, á annarri hæð.Nánari upplýsingar veitir:Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.