Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:Kósí, 67fm, þriggja herbergja kjallaraíbúð í eldra fjórbýli á besta stað á Selfossi.
- - TILVALIN FYRSTU KAUP - - Inngangur er sameiginlegur með íbúðinni fyrir ofan og stigi með náttúruflísum niður í íbúðina. Þar er parketlagður gangur, eldhús á vinstri hönd með geymslu innaf, svefnherbergi, stofa, baðherbergi, annað svefnherbergi og þvottakompa.
Eldhús er með góðri innréttingu og vönduðum tækjum frá AEG, náttúruflísum á gólfi og nettri geymslu innaf. Þar eru inntök og orkumælar sem efri hæð hefur aðgang að samkvæmt skráðri kvöð.
Bæði
svefnherbergin eru vel rúmgóð og með parketi á gólfum, annað þeirra meira nýtt sem geymsla í dag.
Stofan með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi, ummerki um raka í vegg undir öðrum glugganum.
Baðherbergið með hornsturtuklefa, handlaug á skáp og klósetti. Náttúruflísar á gólfi og þiljur á veggjum.
Þvottakompa með máluðu gólfi við hlið stigans, pláss fyrir þvottavél og þurkkara þar en ekki mikið fleira.
Húsið er samkvæmt eignaskiptalýsingu timburhús á steyptum grunni, hurðir og gluggar úr tré og upphaflegt bárujárn á þaki sem farið er að láta á sjá. Drenlögn nýlega endurnýjuð.
Tilvalin íbúð fyrir fyrstu kaupendur.-- Vinsamlegast bókið einkaskoðun --Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 loftur@husfasteign.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.