LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Sérlega vandað og stórglæsilegt einbýlishús hannað af Björgvini Snæbjörnssyni arkitekt. Húsið er á tveimur hæðum ásamt bílskúr á einstökum útsýnisstað við Austurkór í Kórahverfinu og í jaðri golfvallar GKG. Um er að ræða steinsteypt hús sem var byggt árið 2015 og stendur húsið á 577 fm lóð með fallegri aðkomu og upphituði bílaplani. Á baklóð er skjólsæl verönd með heitum potti og lítill garður sem lagður er gervigrasi. Eignin er björt og með góðu skipulagi og hefur verið innréttuð á sérlega smekklegan hátt. Sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum og sjónvarpsvarpsherbergi, granít borðplötur og glæsilegur arinn í miðrými stofu og borðstofu prýðir eignina.
Gólfhiti og innbyggð lýsing - sex svefnherbergi eru í húsinu. Gólfsíðir gluggar á aðalhæðinni og rúmgóðar svalir með einstöku útsýni yfir borgina, til sjávar, vestur að Snæfellsjökli og víðar en þess ber að geta að fyrir aftan húsið er friðað svæði og skyggir því ekkert á útsýnið. Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 296,6 fm og skiptist þannig að efri hæðin er 115,1 fm og neðri hæðin 153,8 fm ásamt 27,7 fm bílskúr, samtals: 296,6 fm.
Allar innréttingar og hurðar eru sérsmíðaðar úr reyktri eik að undanskildum fataskápum í barnaherbergjum.
Möguleiki að breyta hluta neðri hæðarinnar í íbúð. Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.isNánari lýsing eignar efri hæðar: Komið er inn í forstofu og innaf
forstofunni er
gestasalerni með glugga. Á hægri hönd frá forstofu er
innangengt í bílskúrinn sem er með epoxy á gólfum, innréttingu og glugga. Parketlagður
gangur og á hægri hönd er
sjónvarpsherbergi (skráð hjónaherbergi),
baðherbergi og
fataherbergi. Skv. teikningum er þetta rými teiknað sem 23,8 fm hjónaherbergi ásamt baðherbergi. Björt og rúmgóð
stofa og
borðstofa með gasarni. Frá stofu efri hæðar er glæsilegt útsýni og frá borðstofu er unnt að ganga út á svalir sem umlykja efri hæðina og verönd sem liggur að framanverðu . Fallegt sérsmíðuð innrétting í eldhúsi og eyja.
Nánari lýsing neðri hæðar: Parketlagður stigi á neðri hæðina en þar eru
fimm svefnherbergi (eitt af þessum herbergjum er skráð geymsla skv teikningnum). Frá neðri hæðinni er útgengt út á lóðina bakatil og verönd með heitum potti. Flísalagt
þvottahús einnig með útgangi út á baklóðina.
Baðherbergi með baðkari og sturtu og einnig er unnt að ganga út á lóðina frá baðherbergi.
Rúmgott rými á neðri hæðinni með sérinngangi sem væri hægt að breyta í aukaíbúð, allar lagnir eru til staðar í þessu rými.
Gólfefni efri og neðri hæðar: parket og flísar á gólfum.
Sérlega glæsileg eign og frábær staðsetning í næsta nágrenni við alla helstu þjónustu, grunn- og leikskóla, íþróttasvæði og verslanir. Stutt í útivistarparadís með fallegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. inn í Heiðmörk. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.is Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat