EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI.LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Um er að ræða mikið endurnýjaða og snyrtilega 5 herbergja endaíbúð (fjögur svefnherbergi) á 4. hæð ásamt bílsk... Sýna meira
EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI.LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Um er að ræða mikið endurnýjaða og snyrtilega 5 herbergja endaíbúð (fjögur svefnherbergi) á 4. hæð ásamt bílskúr í góðu fjölbýlishúsi við Austurberg 16 í Breiðholtinu. Eignin var mikið endurnýjuð árið 2020 t.a.m. gófefni, innréttingar, baðherbergi o.fl. Nýlegir gluggar og gler í allri íbúðinni ásamt nýlegri svalahurð ásamt því að svalagólfið hefur verið endurnýjað. Snyrtileg og vel umgengin sameign. Húsið var byggt árið 1975 og bílskúrinn 1976. SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAREignaskiptasamningur: 5 herbergja íbúð, 106,4 fm að stærð (rými 0401) ásamt 8,8 fm geymslu í kjallara (rými 0003) og svölum (rými 0404). Eigninni tilheyrir bílskúr í matshluta 04, rými 0108, birt stærð 18,0 fm.Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu / gang með parketi á gólfi. Parketlagður svefnherbergisgangur þar sem eru fjögur svefnherbergi og eru þau öll með parketi á gólfi, fataskápur í hjónaherbergi. Nýlega endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi, Walkin sturta, neðri skápur, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi. Eldhús með fallegri nýlegri hvítri innréttingu sem nær alveg upp í loft, borðkrókur. Innaf eldhúsinu er búr og þvottahús með innréttingu og glugga. Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á stórar 17,3 fm suðursvalir með glæsilegu útsýni. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign. Bílskúrinn er 18 fm og er hann með rafmagni og hita. Eigninni fylgir aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymsla ásamt sameiginlegri geymslu sem íbúar hafa aðgang að.MJÖG SNYRTILEG, BJÖRT VEL SKIPULÖGÐ 5 HERBERGJA ENDAÍBÚÐ Á GÓÐUM STAÐ ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU T.AM. FJÖLBRAUTASKÓLANN Í BREIÐHOLTI (FB), GRUNN- OG LEIKSKÓLA,VERSLANIR (ICELAND, BÓNUR OG FLEIRI SMÁVÖRUVERSLANIR VIÐ LÓUHÓLA, HEILSUGÆSLAN EFRA BREIÐHOLTI, WORLD CLASS OG SUNDLAUG.Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða Umsagnir viðskiptavina HÉRFylgdu mér á FacebookFylgdu mér á InstagramPantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA