Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu: Ársali 3. 201 Kópavogi sem er Þriggja herbergja, samtals 124,9 fermetra íbúðareign á sjöttu hæð í 10 hæða steinsteyptu fjölbýlishúsi frá árinu 2001 ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Húsið samanstendur af 39 íbúðum frá 92,7 fermetrum til 125,2 fermetra að ... Sýna meira
Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu: Ársali 3. 201 Kópavogi sem er Þriggja herbergja, samtals 124,9 fermetra íbúðareign á sjöttu hæð í 10 hæða steinsteyptu fjölbýlishúsi frá árinu 2001 ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Húsið samanstendur af 39 íbúðum frá 92,7 fermetrum til 125,2 fermetra að stærð og eru tvær lyftur í húsinu. Sjötta hæð samanstendur af 4 íbúðum.Íbúðareign 0603 er samtals 124,9 fermetrar og skiptist í 115,2 fermetra íbúð og 9,7 fermetra geymslu.Íbúðin skiptist í anddyri og sjónvarpshol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Innréttingar í eldhúsi, anddyri og svefnherbergjum eru úr mahagony en í baðherbergi er hvít innrétting. Gólf í íbúðinni eru parketlögð utan votrýma sem eru flísalögð. Anddyri, nýtist einnig sem gott sjónvarpshol. Góður fjórfaldur skápur.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturta. Ágæt innrétting.Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi með góðum sexföldum skáp. Minna herbergið er með tvöföldum skáp.Stofa er stór, mjög gott útsýni yfir borgina frá Esju allt yfir á Reykjanes. Úgengt á stórar suðvestursvalir með glerlokun.Eldhús er rúmgott með góðum innréttingum og borðkrókur með útsýni.Þvottahús og búr er inn af eldhúsi.Eigninni tilheyrir 9,7 fermetra geymsla í sameign, merkt 0018Bílastæði merkt 8 í sameiginlegri bílageymslu Ársala 1 - 3.- - -Mjög góð eign í vinsælu og grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, sundlaug og aðra þjónustu. Nánari upplýsingar veitir: Heimir Bergmann lgf í síma 6309000 eða email. Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja? Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 13 ára starfi við fasteignasölu á Íslandi. Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við mig eignum í sölu- eða leigumeðferð. Hringdu núna í síma 630-9000 og pantaðu tíma fyrir þína eign.Frekari upplýsingar: Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.000 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögheimili Eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Ábyrg þjónusta í áratug. Lögheimili Eignamiðlun var stofnuð 2007. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.