LEIGAÁrsalir Kópavogi (efsta hæð ) Fold fasteignasala kynnir til leigu glæsilega 123,0 fermetra útsýnisíbúð á 10. hæð (efstu) með mikilli lofthæð yfir alrýmum í vönduðu húsi byggðu af BYGG við Ársali 3 í Kópavogi.Vönduð íbúð í lyftuhúsi (2 lyftur) með stóru alrými, fallegu eldhúsi með eyju sem er o... Sýna meira
LEIGAÁrsalir Kópavogi (efsta hæð ) Fold fasteignasala kynnir til leigu glæsilega 123,0 fermetra útsýnisíbúð á 10. hæð (efstu) með mikilli lofthæð yfir alrýmum í vönduðu húsi byggðu af BYGG við Ársali 3 í Kópavogi.Vönduð íbúð í lyftuhúsi (2 lyftur) með stóru alrými, fallegu eldhúsi með eyju sem er opið við stofu, rúmgóðum yfirbyggðum svölum til suðvesturs, baðherbergi með sturtu og góðu þvottaherbergi með innréttingu. Sérsmíðaðar innréttingar, vandað fiskibeinaparket og granít á borðum og gluggakistum. Sérgeymsla í kjallara sem er 7,8 fermetrar.Útsýni frá íbúðinni er afar glæsilegt út á sundin, til fjalla, Keili, að Bessastöðum, yfir Kópavoginn, Öskjuhlíðinni, Perlunni, yfir Miðborgina og víðar. Sameign hússins er afar snyrtileg með flísum á ytra anddyri og teppum á sameign. Tvær lyftur eru í húsinu sem ganga niður í bílakjallara. Rafmagnshurðaropnun er á aðalhurðum í sameign. Myndavéladyrasími er í íbúðum. Sameiginlegar svalir á hæðinni til norðurs með fallegu útsýni að Esjunni og víðar. Lóðin er snyrtileg og frágengin með hellulagðri stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginlegum malbikuðum stæðum. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, m.a. skóla, leikskóla, sundlaug, matvöruverslun og heilsugæslu. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er staðsett í sameign.Nánari lýsing:Forstofa/hol: Er rúmgott með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi og sérsmíðuðum skápum og hillum.Svefnherbergi I: Með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi, sérsmíðuðum skápum með lýsingu. Gluggi til norðvesturs með glæsilegu útsýni út á sundin, Bessastaði, yfir Kópavogi, Miðborgina og víðar.Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Sérsmíðaðar innréttingar við vask með speglaskáp og granít á borði. Sturta, handklæðaofn, skápar, salerni og útloftun.Svefnherbergi II: Með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi, sérsmíðuðum skápum og glugga til norðvesturs með glæsilegu útsýni eins og tilgreint er hér að ofan í lýsingu.Eldhús: Með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi, sérsmíðuðum eldhúsinnréttingum með granít á borðum. Siemens bakaraofn, stál eyjuháfur og keramik helluborð. LG amerískur kæliskápur með klakavél og Siemens uppþvottavél. Flísar á milli skápa og lýsing undir efri skápum. Mikil lofthæð er yfir eldhúsi og alrými með innfelldri lýsingu í loftum. Miklir gluggar til suðvesturs og granít í glugga kistum.Stofa: Er stór með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi. Mikil lofthæð og innfelld lýsing í loftum. Gluggar til suðvesturs og norðvesturs með stórkostlegu útsýni út á sundin, til fjalla og yfir Kópavogi/Miðborgina og víðar. Útgengi á svalir frá stofu.Svalir: Eru rúmgóðar og yfirbyggðar með flísum á svalagólfi. Svalalokun er opnanleg og er útsýni með því glæsilegasta.Þvottaherbergi: Er staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og sérsmíðaðar innréttingar með skápum, vinnuborði og vaski. Flísar á milli skápa, lýsing undir efri skápum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Salahverfi í Kópavogi þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt og alla verslun og þjónustu. Stutt í helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.Fold fasteignasala 552-1400, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. Gústaf Adolf 895-7205, Viðar 694-1401, , Hörður s.899-5209 / www.fold.isVið erum á Facebook.