Fasteignasalan Eignaland og Sigurður Fannar kynna í einkasölu: Gott einbýlishús með aukaíbúð í grónum og rólegum botnlanga í hjarta Selfoss.
Um er að ræða 205 m2 einbýli sem skiptist í 125 m2 íbúð með fjórum svefnherbergjum, 40 m2 aukaíbúð með tveimur svefnherbergjum og innbyggðum 40 m2 bílskúr.
Húsið er á einum besta stað í bænum, í göngufæri við Vallaskóla, Sunnulækjarskóla, Fjölbrautaskóla Suðurlands, knattspyrnuhöllina á Selfossi og íþrótta- og sundmannvirki bæjarins.Lóð er 930 m2, sólpallur í skjólgóðum garði.Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is Húsið hefur verið mikið endurnýjað og er endurnýjunarsagan þessi:2016 Ný eldhúsinnrétting og gólfefni
2017 Aukaíbúð tekin í gegn, nýr sturtuklefi, ný eldhúsinnrétting og ný gólfefni
2019 Ný bílskúrshurð
2020 Baðherbergi endurnýjað
2020 Garður rifinn upp og lóð þökulögð
2020 Köld geymsla byggð (14 m2)
2021 Rafmagn endurnýjað - ný tafla
2022 Ný gólfefni og hurðar
2023 Skipt um járn á þaki og nýjar þakrennur. Nýtt gler á suðurhlið. Ný hitagrind.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi sem var endurnýjað árið 2020. Frístandandi baðkar og einnig er sturtuklefi. Smekkleg hvítlökkuð innrétting, upphengt wc og handklæðaofn. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi og aukapláss sem býður upp á möguleika, þar sem áður var fataskápur.
Svefnherbergi 2: Nýtt í dag sem fataherbergi og tómstundaherbergi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 4: Innaf forstofu. Parket á gólfi og fataskápar.
Eldhús/borðstofa/alrými: Falleg og bjart rými, þar sem borðstofan og eldhúsið er "hjartað" Falleg eldhúsinnrétting, hvvítlökkuð með eikarplötu, með góðu skápaplássi.
Borðstofan er fyrir miðju og í framhaldi af henni er
stofa/sjónvarpshol. Í heildina frábært fjölskyldurými.
Þvottahús: (mynd vantar) Innaf eldhús. Fullbúið, þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi.
Bílskúr: (mynd vantar) Fulllbúinn 40fm bílskúr, þar sem í dag er búið að stúka af tómstundaherbergi.
Aukaíbúð: Fullbúin 3ja herb íbúð með tveimur svefnherbergjum. Eldhús og baðherbergi með sturtuaðastöðu. Sérinngangur er í þessa íbúð.
Garður: Gróinn garður með góðum sólpalli, sem snýr í suður. Árið 2020, var lóðin graslögð að nýju.
Köld geymsla: 14 fm samþykkt/lögleg geymsla í garði.
Í heildina er um að ræða hús sem hefur verið talsvert endurnýjað með mikla möguleika, bæði til útleigu eða sem fjölskylduhús, frábærlega staðsett, með góðum og skjólsælum garði.
Áhugasamir setji sig í samband við fasteignasala til að bóka skoðun.Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.