Álfhólsvegur 99, 200 Kópavogi er 138,5 fermetra sérhæð, efst í steinsteyptu þríbýlishúsi frá árinu 1961. Eignin er vel skipulögð 4-5 herbergja íbúð á efstu hæð og er húsið sérstaklega vel staðsett með tilliti til útsýnis. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, tvennar sv... Sýna meira
Álfhólsvegur 99, 200 Kópavogi er 138,5 fermetra sérhæð, efst í steinsteyptu þríbýlishúsi frá árinu 1961. Eignin er vel skipulögð 4-5 herbergja íbúð á efstu hæð og er húsið sérstaklega vel staðsett með tilliti til útsýnis. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, tvennar svalir, þar af yfirbyggðar suðursvalir, lokaður herbergisgangur, 3 svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr og geymslu í kjallara. Skv. eiganda eru sérgeymsla í kjallara (4,5m2) og stigapallur fyrir framan íbúð (4,55m2) ekki taldir með í birtri stærð eignarinnar. Heildarstærð séreingar er því um 9m2 stærri en skráð er.Gert við hús samkvæmt athugasemdum í ástandsskýrslu Mannvits árið 2022: Hús allt múrviðgert að utan 2022 og gert við leka Skipt um glugga og gler í sameign 1. og 2. hæðar Stigagangur 1. og 2. hæðar múrviðgerður og málaður. Nýtt teppi á stiga 2. hæðar (þessarra íbúðar) Bílskúr viðgerður og pappaklæddur Þak endurnýjað: Þakkantur endurnýjaður, nýr þakpappi og nýtt járn á þaki, þakrennur endurnýjaðar. Þaksperrur og klæðning í mjög góðu lagi og þarfnaðist ekki endurnýjunar/lagfæringar.Fasteignamat 2024 er 81.850.000Nánari lýsing: Stigangur er opinn og með 4,55 fermetra palli með náttúrustein á gólfi fyrir framan inngang íbúðar. Forstofa, með skáp og náttúrusteinn á gólfi. Gestasalerni með mosaik flísum á gólfi. Eldhús er rúmgott með góðu skápaplássi, borðkrók og dúk á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél í eldhúsi. Stofa og borðstofa er opin og rúmgóð með einstöku útsýni, parket á gólfi. Svalir eru aðgengilegar frá stofu með einstöku útsýni til norðurs. Herbergi I með skápum, parket á gólfi. hægt að ganga út á rúmgóðar yfirbyggðar suðursvalir með opnanlegum fögum. Herbergi II og III eru með skápum og teppi á gólfum. Baðherbergi er með sturtu, flísar á gólfi og veggjum, Bílskúr fylgir eigninni og er birt stærð 21,7 fermetrar. Hiti í eign er geislahitun sem er innsteypt stálrör í loftum.Fordæmi eru fyrir því að útbúa svalir á þaki bílskúra. Þannig mætti útbúa um 40m2 þaksvalir sem gengið er á beint af suðursvölum íbúðarinnar.(Samþykki íbúa lá fyrir á sínum tíma)Frábært tækifæri til að eignast fallega sérhæð með mikla möguleika á frábærum stað í Kópavogi. Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir.Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang eða í síma 497 7700Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Opinber gjöld við kaup: Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.