RE/MAX og Jón G. Sandholt kynnir í einkasölu bjarta og fallega 4 herbergja endaíbúð á 2.hæð við Álfaskeið 70, Hafnarfirði. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 110,8 fm og tilheyrir eigninni bílskúrsréttur. Eignin telur forstofu, gang/hol, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og... Sýna meira
RE/MAX og Jón G. Sandholt kynnir í einkasölu bjarta og fallega 4 herbergja endaíbúð á 2.hæð við Álfaskeið 70, Hafnarfirði. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 110,8 fm og tilheyrir eigninni bílskúrsréttur. Eignin telur forstofu, gang/hol, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu í sameign.ATH eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða .Nánari lýsing:Forstofa er með parket á gólfi.Gangur/hol er með góðum fataskápum, parket á gólfi.Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir.Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, flísar á milli innréttinga, eldavél, vifta, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg hvít innrétting, baðkar með sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn. Þvottavél og þurrkari inn af baðherbergi.Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum.Sérgeymsla er staðsett í sameign á neðri hæð.Sameiginlegt þvottahús staðsett á neðri hæð, í dag er þvottavél og þurrkari inn af baðherbergi.Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign.Hússjóður Álfaskeið 70 stendur í 6.519.000kr þann 27.03.2024 og skiptist í 2.333.459kr hússjóð og 3.128.769kr framkvæmdasjóð.Hússjóður Álfaskeið 70 - 72 stendur í 1.341.996kr þann 27.03.2024.Það sem hefur verið endurnýjað skv. seljanda er:Ný rafmagnstafla í íbúð og í sameign (2020)Nýr dyrasími með myndavél (2020)Skipt um eldhúsinnréttingu (2014)Baðherbergi standsett (2017)Ný blöndunartæki í sturtu (2021)Skipt um vask, blöndunartæki, borðplötu og eldavél (2021)Þetta er falleg og rúmgóð eign á góðum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða .----------------------------------------------------------------------- Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.